Innlent

Fimm sækja um embætti prests á Selfossi

Mynd/Pjetur
Fimm umsækjendur eru um embætti prests í Selfossprestakalli en frestur til að sækja um embættið rann út í fyrradag.

Eftir mikið óvissutímabil í Selfosskirkju eftir að þáverandi sóknarprestur, séra Gunnar Björnsson, var ákærður fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum var í nóvember á síðasta ári gengið frá flutningi Gunnars í starf sérþjónustuprests.

Í framhaldinu var staða prests í Selfosskirkju auglýst. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Suðurprófastsdæmis. Embættið veitist frá 1. mars 2010.

Umsækjendur eru:

Séra         Ása Björk Ólafsdóttir

Séra         Óskar Hafsteinn Óskarsson

Séra         Ragnheiður Karítas Pétursdóttir

Cand. theol.     Stefán Einar Stefánsson

Cand. theol.     Þráinn Haraldsson 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×