Hollvinir harma niðurskurð 26. janúar 2010 17:40
Stjórn Hollvina Ríkisútvarpsins harmar þann gríðarlega niðurskurð sem nú hefur dunið á Ríkisútvarpinu, í þriðja sinn á skömmum tíma, vegna þeirrar ákvörðunar Alþingis að klípa tíunda hluta af útvarpsgsjaldi því sem er undirstaða tekna RÚV. Í ályktun frá samtökunum segir að vegna þessa hafi nú um 50 starfsmenn Ríkisútvarpsins misst vinnuna, þar á meðal margir af reyndustu dagskrárgerðar- og fréttamönnum þess. „Sérstaklega varhugavert er að mörgum af elstu og reyndustu starfsmönnum RÚV hefur verið sagt upp og með þeim hverfur óhemjumikil og dýrmæt reynsla. Einnig hefur þjónusta við landsmenn utan höfuðborgarsvæðisins verið skert verulega með því að svæðisstöðvar útvarpsins eru meira og minna lamaðar vegna uppsagna," segir ennfremur um leið og fullyrt er að sjaldan hafi verið jafnmikil þörf fyrir að haldið yrði úti „öflugu almannaútvarpi, áreiðanlegri fréttaþjónustu og umfjöllun um framvindu mála og á þessum örlagaríku tímum í sögu þjóðarinnar." Hollvinir segjast hafa fullan skilning á því að draga þurfi saman í starfsemi RÚV eins og annars staðar í þjóðafélaginu eftir efnahagshrunið í fyrrahaust. „En við teljum að hér hafi verið allt of langt gengið í vanhugsuðum niðurskurði og ekki hafi verið reynt að gæta þess að verja meginhlutverk RÚV . Við hörmum ennfremur þann blóðuga niðurskurð á fjárveitingum til innlendrar kvikmyndagerðar, sem kunnugir fullyrða að muni ganga af þeirri grein dauðri." „Eitt allra mikilvægasta verkefni Ríkisútvarpsins er að efla innlenda dagskrárgerð. En ekki verður annað séð en niðurskurðarhnífnum sé einmitt beitt af hvað mestri hörku á þann þátt í starfsemi þess, hvort sem litið er til uppsagna dagskrárgerðarfólks útvarps og sjónvarps, eða framlaga RÚV til innlendrar kvikmyndagerðar," segir að lokum, en undir ályktunina ritar Þorgrímur Gestsson.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Innlent Fleiri fréttir Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Sjá meira