Arnþór Helgason: Liu Xiaobo talinn ógna hagsmunum heildarinnar Valur Grettisson skrifar 10. október 2010 13:20 Arnþór Helgason. „
Það er inngróið í kínverska þjóðarsál að halda þjóðinni saman," segir Arnþór Helgason, formaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins og vinuáttusendiherra Kínverja á Íslandi. Arnþór hefur margsinnis farið til Kína, fyrst á áttunda áratugnum og síðast árið 2004. Kínverjinn Liu Xiaobo hlaut friðarverðlaun Nóbels í vikunni en verðlaunaveitingin hefur beint kastljósi almennings á Vesturlöndum að mannréttindabrotum í Kína. Arnþór hefur hinsvegar ákveðinn skilning á vibrögðum kínversku kommúnistastjórnarinnar. „Þegar Liu Xiaobo kom fram með lýðræðiskröfurnar eins og hann gerði þá vildu margir Kínverjar meina að hann ógnaði hagsmunum heildarinnar," segir Arnþór og bendir á að Kínverjar séu almennt á þeirri skoðun að fangelsun Liu sé réttlætanleg. Arnþór segir nóbelsverðlaunanefndina hafa leikið sér að eldinum með því að veita Liu friðarverðlaun Nóbels. „Og ég spyr mig hversvegna er hann tilnefndur þegar slíkt gæti leitt til ófremdarástands," segir Arnþór. Liu Xiaobo var dæmdur í 11 ára fangelsi. Hann bendir á að Kína hafi fengið að fara sínu fram óáreittir hingað til, ef svo má að orði komast. Hann bendir á að velferðakerfi Vesturlanda byggi á því að fá ódýran varning frá Kína. „Kína er orðið hluti af heimsheildinni sem gerðist ekki fyrr en upp úr 1970," segir Arnþór og bætir við: „Og menn þurfa annaðhvort að taka afleiðingunum eða njóta kosta þess." Gagnrýni almennings í kína fer vaxandi. En nær undantekningalaust beinist gagnrýnin að sveitarstjórnarstiginu og almenningur virðist treysta því að miðstjórnin grípi til þeirra ráða sem duga, því virðist sem almenningur treysti ríkisstjórninni að sögn Arnþórs. Arnþór bendir meðal annars á að heilsugæslan á landsbyggðinni hafi verið einkavædd að fyrirmynd Bandaríkjanna. Sú tilraun misheppnaðist hraplega að sögn Arnþórs en hann áréttar að kínversk yfirvöld vinni nú að því að vinda ofan af þeirri þróun. Arnþór segir það alltaf erfitt að horfa upp á samviskufanga eins og Liu Xiaobo. En hann segir afar lítinn skilning í Kína á því, að hegðun eins manns, sem geti sett ríkiskerfið úr skorðum, sé réttlætanleg.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira