Fyrirmyndir finnast víða 26. júní 2010 06:00 Stefán Ingi Stefánsson framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi telur mikilvægt að fólk líti í kringum sig eftir því sem vel er gert í samfélaginu. fréttablaðið Daníel
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, er einn talsmanna átaksins Til fyrirmyndar. Stefán telur að fyrirmyndir megi finna alls staðar og mikilvægt sé fyrir Íslendinga, sem og aðrar þjóðir, að líta í kringum sig eftir því sem er vel gert í samfélaginu, sérstaklega á tímum sem þessum. Fólk eigi að vera óhrætt við að dást að öðrum og sækja sér fyrirmyndir til þeirra sem gera hlutina best, hverjir svo sem það eru. „Það er alltaf verið að alhæfa um þjóðina, en ég held að það sé óhætt að segja að Íslendingar geri mikið af því að bera sig saman við það sem best er gert. Margir eru ófeimnir að taka upp hugmyndir eða módel annars staðar frá og er það vissulega ein tegund af fyrirmyndum,“ segir Stefán, en hann fór í heimsókn á Barnaspítala Hringsins í vikunni. Segir hann fólk þar virkilega hafa verið að leggja sig fram af krafti og eljusemi. „Það veitti mér mjög jákvæðan innblástur og finnst mér það svo sannarlega vera til fyrirmyndar,“ segir hann. Sjálfur segist Stefán eiga sér fjölmargar fyrirmyndir. „Átakið er tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og hún er svo sannarlega ein af þeim manneskjum sem hafa veitt mér innblástur í gegnum tíðina,“ segir hann. „Ég er líka farinn að hugsa meira um hvað afar mínir og ömmur afrekuðu á meðan þau lifðu. Þau gerðu marga merkilega hluti og voru yndislegt fólk.“ Aðspurður segist Stefán sjálfur ætíð reyna að leggja sig verulega fram um að gera hlutina vel, en erfitt sé að vera til fyrirmyndar á öllum sviðum. „Ég geri hlutina eins vel og ég mögulega get, enda finn ég mér fyrirmyndir í alls konar fólki,“ segir hann. „Þú þarft ekki að vera fullkominn til að veita öðrum innblástur, einungis að gera það sem þú gerir vel og af einlægni.“ Stefán segir að orðinu fyrirmynd fylgi fjölmargar merkingar. „Það eru margir að upplifa það að verða fyrirmyndir allt í einu. Það er litið upp til þeirra sökum stöðu þeirra innan samfélagsins, þó að það sé ekki ætlunin,“ segir hann. „Svo er fólk sem hefur afrekað merkilega hluti sem eru til bóta fyrir samfélagið, hvað sem fólk gerir þá er gott að hafa nóg af fyrirmyndum að velja úr.“ sunna@frettabladid.is
Mest lesið Björgvin Halldórsson látinn Innlent Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Innlent Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Innlent Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Innlent Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Innlent Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Innlent Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Innlent Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Erlent Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítala Innlent Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á vinsælustu fæðingarstellingunni Bílastæðamálin fæli fólk frá miðborginni Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Tilkynnt um þjófnað í þremur verslunum Goðsögn fallin frá Hafi óvart tekið símann með sér en ekki rænt honum Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Hvetur til varúðar með gervigreind í aðdraganda kosninga Þau skipa L-listann á Akureyri Björgvin Halldórsson látinn Vísindi á vordögum: Kulnun og álag Ógnarhröð þróun geti líka nýst til góðs Vísað úr landi eftir búðarhnupl Uppsögn Ragnars Freys, öryggisógnir og íslenskur þorskur Segist ekki hafa fengið boð um hærra starfshlutfall Ragnari Frey býðst hærra starfshlutfall á Landspítalanum Segir furðu sæta að hagfræðingur telji námslán gjöf Stálvirki nýrrar Ölfusárbrúar flutt úr Þorlákshöfn á verkstað Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Gabríel Douane játaði óvænt að hafa barið fangaverðina Freyr Gígja frá RÚV til dómsmálaráðuneytis Forðaðist skólann sem barn en fræðir foreldra um valkosti í dag Flestum þykir stjórnvöld standa sig illa í útlendingamálum Krían komin um tveimur vikum á undan áætlun Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Flæddi út um leka lögn á meðan fólk flúði vegna vatnsskorts Kollegar furðu lostnir og gagnrýna uppsögn Ragnars Strandaglópar á Tenerife eftir að hafa verið meinaður aðgangur að flugi Þriðja flugbrautin í Keflavík „rosalega dýr framkvæmd“ „Við eigum að hækka verðið á sykri“ Sjá meira