Nauðungarsala blasir við 240 íbúðareigendum 8. október 2010 11:05 Mynd: Stefán Karlsson
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að flest bendi til þess að um 230 til 240 íbúðir, þar sem eigandi á lögheimili, fari að óbreyttu á lokasölu í október. Ætlunin er að þessir aðilar fái nú flýtimeðferð hjá Umboðsmanni skuldara og embættið fái afdráttarlausar heimildir til að stöðva nauðungarsölur í slíkum tilfellum. Nú er unnið því að hafa samband við þá 230-240 aðila sem standa í þessum sporum og reynt að leita lausna í samráði við þá. Þetta kom fram í munnlegri skýrslu sem Jóhanna gaf á Alþingi í gærkvöldi um skuldavandann og aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Hún lagði þar áherslu á að á Íslandi ætti enginn að þurfa að verða heimilislaus vegna skuldavanda. Það þurfi stjórnvöld, fjármálastofnanir og sveitarfélög að tryggja í sameiningu. Á næstu dögum er von á frumvarpi frá efnahags- og viðskiptaráðherra um viðbrögð við nýföllnum gengislánadómum, þar sem leitast verður við að draga úr óvissu og greiða fyrir úrlausn skuldamála einstaklinga. Jafnframt er unnið að því að endurnýja samkomulag við banka og aðra hagsmunaaðila um sértæka skuldaaðlögun. Gert er ráð fyrir að bönkunum verði gefinn stuttur tími til að vinna úr skuldamálum smærri og meðalstórra fyrirtækja á næstu mánuðum og bankarnir skili þannig til viðskiptavina sinna því svigrúmi sem þeir hafa til að mæta þörfum skuldsettra fyrirtækja. Með sama hætti þarf að skoða þær ábendingar sem komið hafa fram um galla á skuldaaðlögun einstaklinga og tryggja að með henni verði unnt að veita þúsundum einstaklinga fullnægjandi úrlausn í bönkunum á næstu mánuðum. Jóhanna lauk skýrslu sinni á orðunum: „Ríkisstjórnin hefur á hverjum tíma unnið af heilum hug að endurreisninni og úrlausn skuldavandans án þess að missa sjónar á heildarmyndinni. Líta verður á hagsmuni þjóðarinnar allrar við lausn þessara mála. Það blasir við að við verðum að ganga saman þessa sársaukafullu vegferð. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að sátt náist í samfélaginu. Það er skylda okkar alþingismanna."
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira