Innlent

Ólafur víttur fyrir níðvísu

Ólafur F. Magnússon
Ólafur F. Magnússon

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, var víttur á borgarstjórnarfundi í gær eftir að hafa farið með níðvísu um Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. Hann bar jafnframt upp vantrauststillögu á Hönnu Birnu sem var vísað frá.

Sagði Ólafur að Hanna Birna hefði sett sál sína að veði fyrir Landsbankann, og vísaði þar til þess að hún hefði gegnt starfi aðstoðarframkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins þegar Kjartan Gunnarsson, formaður bankaráðs Landsbankans, var framkvæmdastjóri.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar, áminnti Ólaf ítrekað á fundinum og vítti hann að lokum formlega. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×