Innlent

Viðbótarlífeyrissparnaður skerðir ekki námslán

Frá Háskóla Íslands.
Frá Háskóla Íslands.
Í nýjum úthlutunarreglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir skólaárið 2010-2011, sem taka gildi í dag, var sett inn ný regla vegna viðbótarlífeyrissparnaðar og gildir hún líka fyrir skólaárið 2009-2010. Reglan felur í sér að útborgun á viðbótarlífeyrissparnaði kemur ekki til skerðingar á námslánum.

Breytingin frá fyrri reglu er í því fólgin að allir lánþegar skólaársins 2009-2010 sem fengu skerðingu á námsláni sínu vegna útborgunar á viðbótarlífeyrissparnaði á árinu 2009 geta óskað eftir leiðréttingu. Sækja þarf um það sérstaklega með því að senda tölvupóst til LÍN með afriti (viðhengi) af skattframtali 2010 (yfir tekjur á árinu 2009). Námsmenn geta nálgast eigið skattframtal á vefþjónustu skattsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá LÍN.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×