Innlent

Björgunarsveitum snúið við í nótt

Kolbeinsey
Kolbeinsey MYND/Jón Páll Ásgeirsson
Björgunarsveit frá Siglufirði var snúið við í nótt þegar að bátur sem hafði dottið út af radar nokkrum mílum norður af Kolbeinsey kom aftur í leitirnar.

Landhelgisgæslan hafði kallað björgunarsveitina út og gert nálægum bátum viðvart. Þá var varðskipi snúið á svæðið. Svo virðist sem tæki hafi bilað í bátnum eða þá að mannleg mistök hafi verið gerð.

Sjómenn eru hvattir til að fylgjast með vöktunarbúnaði svo björgunarsveitir eru ekki kallaðar út að óþörfu.

Í gær var þyrla komin út á Breiðafjörð vegna báts sem svaraði ekki talstöðinni fyrir utan Súðavík. Ferðamenn voru á bátnum sem höfðu einfaldlega gleymt að kveikja á talstöðinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×