Innlent

Um fimmhundruð manns mótmæltu á Egilsstöðum

Egilsstaðir.
Egilsstaðir.

Um fimmhundruð manns mótmæltu niðurskurðartillögum til heilbrigðisstofnanna á starfssvæði Heilbrigðisstofnunnar Austurlands á borgarafundi á Egilsstöðum í dag. Þar voru tvær ályktanir samþykktar þar sem fram kemur að niðurskurðartillögurnar séu aðför að heilbrigðisþjónustu á starfsvæði HSA.

Svo segir orðrétt í tilkynningu:

„Ekki liggur fyrir mat á samfélagslegum áhrifum, sem boðaður niðurskurður mun hafa í för með sér á Austurlandi. Vafalaust munu áformin leiða til aukins atvinnuleysis með tilheyrandi kostnaði fyrir ríkissjóð og íbúafækkunar með tilheyrandi tekjutapi fyrir sveitarsjóði. Þá er ótalinn sá öryggisþáttur sem skert aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimabyggð er, að ógleymdum auknum kostnaði íbúanna við að sækja þjónustu um lengri veg."

Hægt er að lesa tilkynninguna og ályktanirnar hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×