Gömlu fartölvurnar líktust saumavélum 24. september 2010 11:18 Saumavélin svokallaða kom á markað fyrir 26 árum og þótti afar framúrstefnuleg tölva.
Saumavélin, ein fyrsta IBM fartölvan, sem kom á markað árið 1984, verður kynnt til sögunnar á Vísindavöku Rannís sem verður í Listasafni Reykjavíkur í kvöld. Tölvan, sem heitir IBM Portable, var hins vegar oft nefnd saumavélin þar sem hún þótti minna frekar á vél til notkunar fyrir saumaskap heldur en tölvu. Á sýningunni verður einnig hægt að sjá búnað frá árdögum fartölvuvæðingarinnar; fyrstu vélarnar með innbyggðu geisladrif, fyrstu vélarnar með innbyggðu þráðlausu neti og nýjustu fistölvurnar. Saumavélin, sem var með innbyggt lyklaborð, var hins var mikil bylting fyrir fyrirtæki því í fyrsta skipti var hægt að ferðast með tölvu á milli funda. „Það var hins vegar ekki fyrr en á 10. áratug 20. aldar sem fartölvur hófu að þróast allverulega og notagildi þeirra jókst umtalsvert. Það þótti til dæmis til tíðinda þegar ThinkPad vélarnar frá Lenovo ruddist fram á markaðinn árið 1994 með fartölvu sem bjó yfir innbyggðu geisladrifi. Hún gerði notendum kleift að hlaða inn og nota mikið af gögnum með einföldum hætti," segir Gísli Þorsteinsson hjá Nýherja. Ein mesta byltingin í þróun fartölva hingað til var í kringum aldamótin 2000 þegar fyrstu vélarnar með innbyggðu þráðlausu neti komu á markað. „Þá jókst notagildi og afköst notenda verulega. Síðan þá hafa framleiðendur ávallt komið með ýmsar nýjungar á hverju ári. Má þar nefna árið 2001 þegar ThinkPad T línan kemur á markað sem býr yfir innbyggðum öryggiskubbi sem gerir vélarnar þær öruggustu sem völ er á. Árið 2003 var ThinkPad T41 fyrsta fartölvan með innbyggða vörn fyrir harða diskinn sem ver diskinn fyrir skemmdum, til dæmis ef hún fellur í gólfið. Vörnin dregur því verulega úr diskabilun. Þá kom árið 2004 á markað fyrsta fartölvan með innbyggðum fingralesara. Það sem hefur meðal annars áhrif á þróun fartölva í dag er mikill áhugi á samfélagsmiðlum á netinu eins og Facebook, Youtube og fleiri miðlum. „Slíkur áhugi kallar á að í fartölvum séu vefmyndavélar. Skype er mjög vinsælt og getur ungt fólk spjallað frítt í gegnum það með góðri fartölvu. Einnig hefur myndvinnsla aukist verulega og mikið tekið af videomyndum. Windows MovieMaker með Windows 7 kemur því að góðum notum. Þá hafa örgjörvar breyst mikið og eru nú með meiri áherslu á orkusparnað en áður," segir Gísli.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sjá meira