Vilja friða hús frumkvöðla 14. desember 2010 06:00 Valið eitt af 100 merkustu byggingum 20. aldar í norður- og miðhluta Evrópu í alþjóðlegu yfirlitsriti, segir Húsafriðunarnefnd um húsið sem Högna Sigurðardóttir teiknaði. Fréttablaðið/Anton
Einbýlishúsin á Bakkaflöt 1 og í Mávanesi 4 í Garðabæ eru meðal fjögurra einbýlishúsa sem Húsafriðunarnefnd telur að friða eigi sem merk framlög til íslenskrar byggingarlistar. Auk áðurnefndra tveggja húsa leggur Húsafriðunarnefnd til við menntamálaráðherra að húsin í Brekkuskógum 8 og 10 á Álftanesi verði friðuð. Álftaneshúsin, sem eru frá upphafi sjöunda áratugarins, eru teiknuð af Manfreð Vilhjálmssyni og Guðmundi Kr. Kristinssyni. Manfreð hannaði Mávanes 4 og húsið á Bakkaflöt 1 er eftir Högnu Sigurðardóttur. „Við lítum aðallega á friðunina þannig að við séum að gera viðvart um að viðkomandi hús teljist til þjóðminja,“ segir Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður Húsafriðunarnefndar. „Á meistaralegan hátt tekst höfundi að endurskapa andrúm og efniskennd íslenskra torfbæja í nútímalegum formum og frjálsri rýmisskipan. Þessi frumlega túlkun á sérkennum íslenskrar byggingarlistar hefur orðið til þess að margir hafa tilnefnt þetta hús sem eitt merkasta framlag einstaklings til íslenskrar nútímabyggingalistar,“ segir í umsögn Húsafriðunarnefndar um húsið Bakkaflöt 1 sem byggt er árið 1965. Um Mávanes 4, sem byggt er 1964, segir Húsafriðunarnefnd að styrkur hússins felist ekki síst í tengslum þess við umhverfið. „Það er að margra mati í hópi merkustu verka á sviði íslenskrar nútímabyggingarlistar,“ segir nefndin. Nikulás segir Húsafriðunarnefnd hafa viljað friða tvö hús til viðbótar, Mávanes 7 eftir Guðmund Kr. Kristinsson og Sunnubraut 36 í Kópavogi eftir Högnu. Hætt hafi verið við friðun fyrra hússins vegna andstöðu eiganda þess en enn séu viðræður í gangi við eiganda síðarnefnda hússins. Sú friðun sem lögð er til nær til ytra byrðis húsanna. „Fólk heldur stundum að við munum koma daginn sem húsið er friðað og henda því út. Í raun eru kvaðirnir sem fylgja friðun ekkert meiri en þær kvaðir sem eru á eigendum húsa eins og þær eru skilgreindar í skipulags- og byggingarlögum og byggingarreglugerð,“ útskýrir Nikulás Úlfar Másson. gar@frettabladid.is Mávanes 4 Höfundareinkenni Manfreðs Vilhjálmssonar birtast í yfirborðsmótun steinsteypu og samspili útveggja við létta burðargrind.Fréttablaðið/AntonBrekkuskógar 8 og 10 Hús arkitektanna Manfreðs Vilhjálmssonar og Guðmundar Kr. Kristinssonar mörkuðu þáttaskil, segir Húsafriðunarnefnd. Fréttablaðið/AntonBrekkuskógar 10
Mest lesið Stúlkan fannst heil á húfi Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Sjá meira