Stympingar á milli stuðningsmanna í nágrannaslag á Akureyri 8. júlí 2010 22:47 Frá leik KA. Mynd tengist frétt ekki beint. „
Ég er KA-maður sjálfur og skammast mín fyrir það eftir þetta," segir Ingvi Hrannar Jónsson, stuðningsmaður KA sem fór á heimavöll liðsins í kvöld til að sjá lið sitt keppa á móti erkifjendunum í Þór í 1. deildinni í kvöld. Margir hafa sótt völlinn þegar að þessi tvö lið mætast en í kvöld sauð upp úr í stúkunni hjá stuðningsmönnum KA þegar að tveir Þórsarar komu yfir til að ögra þeim, að sögn Ingva. Hann varð vitni að átökunum og segir að ölvun hafi verið mikil á svæðinu og ekki hafi gæslumenn verið sjáanlegir þegar til átakanna kom. Meðstjórnandi í stjórn KA segir að liðið sé ekki með dyraverði og að átökin hafi verið minniháttar.„Hvar eru saggarnir?" Ingvi segir að stuðningsmenn Þórs hafi verið í grasstúkunni og Saggarnir, stuðningsmenn KA, í steinstúkunni. „Menn eru að syngja á móti hvor öðrum eins og gengur og gerist á leikjum. Þegar að tíu mínútur voru til leiksloka þá koma tveir stuðningsmenn Þórs, vel ölvaðir og með bjór í hendi, yfir til okkar og setjast við hliðina á mér. Þeir renna niður úlpunum og byrja að öskra: „Hvar eru Saggarnir? Hvar eru Saggarnir?" Þá sauð allt upp úr," segir Ingvi. Í kjölfarið segir hann að fólk hafi reynt að stía menn í sundur. „Ég fór og ýtti einum og sagði honum að hunskast í burtu. Ég sagði honum að ölvun væri stranglega bönnuð á svæðinu og annað fullorðið fólk var að hjálpa til að stía þeim í sundur og rífa bjórana af þeim. Á endanum voru þeir orðnir vel reiðir og það þurfti að halda mönnum í burtu."Engin gæsla Ingvi segir að hann hafi ekki séð einn gæslumann á svæðinu. „Ég á ekki orð yfir því að það hafi ekki verið gæslumenn á þessum nágrannaslag," segir Ingvi en ungir strákar hafi verið að taka við miðum við innganginn. Svo hafi einhverjir strákar verið fyrir aftan mörkin. En enginn hafi verið sjáanlegur upp í stúku eða í kringum stuðningsmennina. Ingvi segir að enginn högg hafi fengið að fjúka en það hafi verið verulega heitt í mönnum. Mikið af fjölskyldufólki og krökkum hafi verið á vellinum. „Ég á sjálfur eins árs gamlan strák og þakka fyrir að hafa ekki verið með hann með mér á vellinum því þeir settust við hliðina á mér."Geta ekki staðið í því að stoppa slagsmál Halldór Aðalsteinsson, meðstjórnandi í stjórn knattspyrnudeildar KA, segir að það sé rétt að til stympinga hafi komið á milli manna. „Það var eitthvað minniháttar, þetta var ekkert alvarlegt." Aðspurður út í það að það hafi verið lítil gæsla á svæðinu segir Halldór:. „Við erum náttúrulega með fullt af gæslumönnum. Ef menn ætla að koma þarna til að slást þá getum við ekki staðið í því. Ég réð mig ekki sem dyravörð, við erum ekki með svoleiðis. Það er bara hefðbundin gæsla eins og annars staðar," segir Halldór. Hann segir að liðin hafi spilað á móti hvoru öðru í áratugi án þess að eitthvað hafi komið upp á. „Eina sem ég get sagt þér er að það var óskað eftir því að fá lögregluna á þennan leik, ég get sagt þér það, til að vera þarna ef eitthvað kæmi upp á en þeir sáust ekki á vellinum og komu ekki." Hann segist ekki geta sagt til um það hvað það hafi verið margir í gæslunni. „Ég er nú ekki með töluna á því. Við vorum með allan 2. flokkinn sem eru strákar um tvítugt." „En ég er ekki sammála því að þetta hafi verið einhver átök, smá nudd í þessu. Þetta var óþarfi - en þetta getur skeð á þessum leikjum." segir hann að lokum. Þess má til gamans geta að Þór vann leikinn 0-2.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira