Leifar frá Feneyjadvölinni 14. janúar 2010 06:00 Leifar frá Feneyjum Ragnar Kjartansson opnar sýningu á verkum sínum í Hafnarborg á laugardag. Hann segist ánægður með verkin þó mörg þeirra séu hálfkláruð.Fréttablaðið/GVA
Sýning á verkinu Endalokin - Klettafjöll, eftir Ragnar Kjartansson verður opnuð í Hafnarborg nú á laugardag og stendur til 28. febrúar. Verkið er tvískipt og er annar hluti þess tónlistar- og myndbandsverk sem tekið var upp í Klettafjöllunum og sýnir Ragnar og Davíð Þór Jónsson leika á ólík hljóðfæri á fimm mismunandi sjónvarpsskjáum. Seinni hluti verksins var unninn í Feneyjum þar sem Ragnar málaði listamanninn Pál Hauk Björnsson daglega í hálft ár. „Þetta er sýning á leifunum af Feneyjagjörningnum. Þetta eru um 150 málverk sem verða til sýnis auk ljósmynda, dagbóka og ýmissa minjagripa þannig að hægt er að fylgjast með ferlinu. Það er dálítið fallegt að sjá hvað dagbókafærslurnar verða þungar og vænisjúkar eftir því sem á líður," segir Ragnar Kjartansson listamaður. Hann segist vera ánægður með málverkin þó mörg þeirra séu hálfkláruð og lýsir sýningunni sem málverkainnsetningu. Aðspurður segir hann ekki erfitt að mála sama myndefnið daglega þar sem rýmið geti verið breytilegt dag frá degi. „Maður fór út og vonaði hið besta en bjóst við hinu versta. Þetta gekk þó betur en maður hafði þorað að vona og það kom mér þægilega á óvart hvað verkið vakti mikla athygli í Feneyjum. Það komu nokkur hundruð manns í skálann dag hvern og stundum átti ég mjög erfitt með einbeitingu. Listmálun er svolítið heilög og persónuleg athöfn sem er yfirleitt gerð í einveru, en í raun get ég ekki kallað þessar heimsóknir truflun því þetta var sjálfskaparvíti." Ragnar er þó feginn að vera loks kominn aftur heim en segir dvölina í Feneyjum hafa verið hið besta kreppuráð. „Það er gott kreppuráð að dvelja í borg eins og Feneyjum, þar var allt svo dýrt þannig að mér fannst hressandi að koma aftur til Reykjavíkur." Vídeóverkið Endalokin - Klettafjöll verður sýnt í fyrsta sinn eftir að tvíæringnum lauk og helgina eftir verður það einnig sýnt á Sundance-kvikmyndahátíðinni. Ragnar verður viðstaddur hátíðina og segist hlakka mikið til. „Ég er farinn að hlakka geðveikt mikið til. Ég vona að ég hitti Robert Redford sjálfan á meðan ég er þarna, svo ætla ég bara að vappa um og reyna að fá eiginhandaráritanir hjá sem flestum," segir Ragnar og hlær. Opnunin í Hafnarborg er klukkan 15.00. - sm
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira