Innlent

Vilja funda vegna kreppunnar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Pétur Blöndal er annar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í efnahag- og skattanefnd. Mynd/ GVA.
Pétur Blöndal er annar fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í efnahag- og skattanefnd. Mynd/ GVA.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og skattanefnd Alþingis hafa óskað eftir því að nefndin komi saman í tilefni af nýbirtum hagtölum Hagstofunnar sem sýna mikinn samdrátt í landsframleiðslu og fjárfestingu.

Þeir Pétur Blöndal og Tryggvi Þór Herbertsson segja að ef fram heldur sem horfir muni blasa við mun verri staða í efnahagsmálum þjóðarinnar en nokkurn óraði fyrir og þörf var á. Þeir segja að ráðamönnum virðist ekki vera kunnugt um stöðuna ef marka megi ummæli þeirra í umræðum um efnahagsmál í þingsölum í gær.

Þeir Pétur og Tryggvi segja að um 22.500 störf hafi tapast á síðustu tveim árum og ekki bóli á neinum aðgerðum til atvinnusköpunar. Brýnt sé að nefndin fjalli um hvort þörf sé á einhverjum sérstökum aðgerðum Alþingis til að mæta þeim fréttum sem hagtölur Hagstofunnar beri með sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×