Innlent

„Þeir þurfa mömmu litlu greyin“

Þeir eru nýfæddir og krúttlegir en þá vantar fósturmömmu, hvolpana í Mosfellsbæ. Eigendurnir gripu til þess ráðs að auglýsa á Facebook. Bella, sem var Cavalier tík, gaut fimm hvolpum á þriðjudag en aðeins tveir lifðu. Bella dó í nótt og hvolparnir tveir því munaðarlausir.

Eigendurnir brugðu á það ráð að auglýsa eftir fósturmömmu á Facebook og hafa verið viðbrögðin verið afar góð. „Það lítur út fyrir það," segir Íris Björk Hlöðversdóttir aðspurð hvort eigendurnir séu búnir að finna mömmu fyrir hvolpana.

„Við erum að fara með hvolpana í Kópavog til góðrar konu sem hafði samband. Þar er hún með mjólkandi tík sem er gerviólétt, er ekki með neina hvolpa og hún ætlar að athuga hvort hún taki við hvolpunum okkar. Þar til að önnur tík í Breiðholti, Papillon tík sem er að fara að gjóta, verður búin að gjóta og gæti þá tekið þá að sér og fóstrað þá fyrir okkur," segir Íris Björk.

Hún segir að hvolparnir hafi það gott. „En þeir þurfa virkilega á fósturmömmu að halda því þeir eru ekkert farnir að þyngjast hjá okkur að ráði. Við höfum verið að gefa þeim sjálf hvolpamjólk með því að láta drippa upp í þá en það þarf meira til," segir Íris og bætir við: „Þeir þurfa mömmu litlu greyin."




Tengdar fréttir

Tveggja daga hvolpar misstu mömmu sína

„Lífið er hverfult. Hér sit ég buguð af sorg og sé varla út úr augunum fyrir táraflóði og hrópa út til ykkar því nú þarf ég aldeilis á hjálp að halda," segir Íris Björk Hlöðversdóttir sem átti tíkina Bellu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×