Umferð flutningabíla á skólalóð mótmælt 24. nóvember 2010 06:00 Pétur Hafþór Jónsson
Foreldrar barna í Austurbæjarskóla telja öryggi þeirra á skólalóðinni ógnað af umferð flutningabíla frá Orkuveitu Reykjavíkur. Orkuveitan á húsnæði við suðurenda Austurbæjarskólans. Þar var áður spennistöð en um árabil hefur verið þar geymsla. Fyrirtækið á umferðarrétt um lóðina.„Breytt nýting húsnæðisins hefur meðal annars haft í för með sér flutninga á risavöxnum spólum, vinnuvélum og umferð þungra ökutækja á skólalóðinni. Hefur undirrituð orðið vitni að meðal annars flutningi vörubíls á lyfturum tvívegis í sömu vikunni nú í nóvember. Var einungis einn starfsmaður með í för,“ segir í bréfi sem formaður Foreldrafélags Austurbæjarskóla, Birgitta Bára Hassestein, sendi framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar 15. nóvember. Í bréfi til byggingarfulltrúa í febrúar á þessu ári lýsti Birgitta þungum áhyggjum starfsmanna og foreldra. Meðal annars sagðist hún hafa séð vörubíl með tengivagni, sem á hafi verið allt að þriggja metra háar spólur, taka knappar beygjur áður en hann sneri við og bakkaði að geymslunni. „Hver sem verður vitni að þessu áttar sig á að þetta getur verið stórhættulegt,“ segir í bréfinu. Byggingarfulltrúi bað um skýringar frá Orkuveitunni. Í svari fyrirtækisins segir að fróðustu menn viti ekki til að slys hafi orðið á fólki við umrætt húsnæði frá því að það var tekið í notkun. Geymslan sé notuð fyrir mjög sérhæfða varahluti sem örsjaldan þurfi að nálgast. „Þá hefur ávallt verið gætt fyllsta öryggis gagnvart umferð og fólki (nemendum) í nágrenni stöðvarinnar,“ segir í svari Orkuveitunnar sem enn fremur upplýsir að taka eigi húsnæðið úr notkun á næstu árum. Í kjölfar skoðunar á málinu sagðist byggingarfulltrúi í apríl ekki mundu aðhafast frekar. „En til þess að tryggja öryggi skólabarna er lagt til að skólastjórn Austurbæjarskóla og OR komi sér saman um setningu öryggisreglna sem viðhafðar verði vegna aðkomu að húsnæðinu,“ segir í svari til formanns foreldrafélagsins. Pétur Hafþór Jónsson, tónlistarkennari í Austurbæjarskóla, segir bæði mengun og slysahættu af vörubílum Okruveitunnar. „Það er fáránlegt að þetta skuli vera inni á skólalóð. Slysin gera ekki boð á undan sér og það er mengun af þessu. Mér finnst að svona stöndug fyrirtæki eins og Orkuveitan eigi að sjá sóma sinn í því að fara með þetta annað en vera ekki að þumbast við.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira