Krefjast 60 milljóna í bætur fyrir skítalykt 6. júlí 2010 05:00 Lyktarmengun er helsta ástæða þess að nágrannar svínabúsins á Melum krefja Hvalfjarðarsveit um bætur fyrir að hafa leyft Stjörnugrís að reka búið. Fréttablaðið/Gva
Hvalfjarðarsveit hefur verið stefnt fyrir Héraðsdóm Vesturlands til að greiða eigendum jarðarinnar Melaleitis sextíu milljónir króna í skaðabætur fyrir meinta rýrnun á verðmæti jarðarinnar í kjölfar útgáfu byggingarleyfis fyrir svínabú Stjörnugríss á Melum. Eigendur Melaleitis eru fjórar systur. Í stefnu þeirra segir að þau umhverfisáhrif frá svínabúinu sem rýri hvað mest verðmæti Melaleitis sé lyktarmengun af húsum og áhrif vegna dreifingar svínaskíts frá búinu, umferðar í gegnum jörðina með skít frá svínabúinu á Melum og af skaðlegum efnum í svínaskít sem dreift sé í kringum Melaleiti. Þannig segja Melaleitis-systurnar að verðgildi Melaleitis hafi minnkað til muna vegna starfsemi Stjörnugríss sem starfi í skjóli sveitarfélagsins. Möguleikar á bæði atvinnustarfsemi og frístundanotkun hafi minnkað í Melaleiti. Stjörnugrís hefur rekið svínabú á Melum frá árinu 1999. Það er eitt stærsta svínabú landsins og stefnir nú að kaupum á tveimur öðrum stórum svínaræktarfyrirtækjum, á Brautarholti á Kjalarnesi og í Hýrumel í í Borgarfirði. Starfsemi og starfsleyfi Stjörnugrís hafa áður verið borin undir dómstóla og úrskurðarnefndir og fyrirtækið jafnan haft betur. Eigendur Melaleitis vísa til ákvæðis skipulagslaga um hlutlæga bótaábyrgð. Valdi skipulagsbreyting því að nýtingarmöguleikar og verðmæti fasteigna lækki þá eigi viðkomandi rétt á bótum úr sveitarsjóði. Jarðeigendurnir segja Hvalfjarðarsveit hafa með því að samþykkja skipulagið brotið vísvitandi á rétti eigenda Melaleitis. Aðeins hagsmunir eigenda jarðarinnar Mela og sveitarfélagsins sjálfs hafi legið að baki útgáfu byggingarleyfis fyrir svínabúið. Þess utan hafi sveitarfélagið ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni áður en ákvörðun var tekin í málinu. „Auðguðust bæði eigendur jarðarinnar Mela og sveitarstjórn á kostnað stefnenda [eigenda Melaleitis] á óréttmætan hátt,“ segir í stefnu systranna. Héraðsdómur Vesturlands hefur kvatt til matsmenn til að vinna í málinu. Reiknað er með að niðurstaða þeirra liggi fyrir í haust. Segjast eigendur Melaleitis þá munu breyta bótakröfu sinni til samræmis við álit matsmannanna. Hvorki náðist í sveitarstjóra Hvalfjarðarsveitar né lögmanns sveitarfélagsins við vinnslu þessarar fréttar. gar@frettabladid.is
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira