Innlent

Ólafur gagnrýnir laun Margrétar

Þegar allt lék í lyndi. Margrét og Ólafur 17. mars 2005. Mynd/E.Ól
Þegar allt lék í lyndi. Margrét og Ólafur 17. mars 2005. Mynd/E.Ól
Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, segir að svar borgarstjóra við fyrirspurn sinni um laun og störf Margrétar Sverrisdóttur, varaborgarfulltrúa, staðfesti að hún hafi 212 þúsund krónur í laun á mánuði fyrir að meðaltali einn tveggja klukkustunda langan fund. Tímakaup hennar sé því 100 þúsund krónur.

„Auk þess hefur varaborgarfulltrúinn fengið vinnuaðstöðu á skrifstofum borgarfulltrúa sem hún hvorki nýtir né hefur þörf fyrir. Ég tel að málefni varaborgarfulltrúans séu ekki aðeins með endemum heldur með öllu óverjandi á tímum harkalegs niðurskurðar gagnvart þorra borgarbúa,“ segir í bókun sem Ólafur lagði fram á fundi borgarráðs í morgun og sendi fjölmiðlum eftir hádegi.

Ólafur og Margrét skipuðu tvö efstu sætin á framboðslista Frjálslyndra og óháðra í borgarstjórnarkosningunum 2002 og 2006. Frá síðustu kosningum hafa bæði Ólafur og Margrét gengið úr Frjálslynda flokknum. Margrét starfar nú með borgarstjórnarflokki Samfylkingarinnar og bauð sig fram í prófkjöri flokksins um síðustu helgi. Ólafur hefur hug á að gefa kost á sér í kosningunum í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×