SA: Sparnaður í stað skattahækkana Hafsteinn Hauksson skrifar 16. júní 2010 12:10 Frá fundi Samtaka Atvinnulífsins í morgun, þar sem ritið var kynnt.
Samtök Atvinnulífsins segja svigrúm til skattahækkana fullnýtt út árið 2011. Samtökin leggja til að sparnaði verði beitt til að ná böndum á ríkisfjármálin og leggja til aukinn einkarekstur í því skyni, meðal annars í heilbrigðisþjónustunni, og að lífeyrisaldur verði hækkaður. Hallarekstur ríkissjóðs var um 9% af landsframleiðslu á síðasta ári, og verg skuldastaða hins opinbera yfir 120%. Í riti sem Samtök Atvinnulífsins kynntu í morgun eru tillögur að nauðsynlegum umbótum í fjármálum hins opinbera, meðal annars til að draga úr vaxtakostnaði vegna hinna miklu skulda. Þar segja samtökin að ekkert svigrúm sé til frekari skattahækkana til ársins 2011. Samtökin leggja því til sparnað og gjaldalækkanir til að rétta halla ríkissjóðs og segja hvergi mega hvika frá markmiði um jöfnuð í opinberum fjármálum árið 2013. Samtökin beina einkum sjónum sínum að stærstu útgjaldaliðum ríkissjóðs í því tilliti, eða heilbrigðiskerfinu, mennta- og menningarmálum og félagslegum tryggingum. Þá er einnig hvatt til aukinnar hagræðingar hjá stofnunum hins opinbera og sveitarfélögum. Hvað heilbrigðismál varðar er vitnað til skýrslu frá OECD og sagt að hægt sé að ná fram 30-40% sparnaði í heilbrigðiskerfinu, meðal annars með samkeppni og auknum einkarekstri. Í menntamálum er lagt til að allir háskólar verði gerðir að sjálfseignarstofnunum, tekin verði upp skólagjöld í ríkisháskólum, að framhaldsskólanám verði stytt og framhaldsskólar verði sameinaðir. Þá er stungið upp á að ljósvakamiðlar í samkeppni við Ríkisútvarpið fái tækifæri til að bjóða í lögbundin verkefni þess í opnu útboði og bein opinber fjárlög til ríkisútvarpsins falli niður. Í ritinu er jafnframt stungið upp á því að hækka almennan aldur til töku lífeyris úr 67 árum í 68, og úr 65 í 68 ár hjá lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna. Samtökin leggja áherslu á að vinnubrögð við fjárlagagerð gerbreytist í vinnunni sem framundan er, og stjórnvöld móti sér framtíðarsýn í ríkisfjármálunum, í stað þess að horfa til eins árs í senn.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira