Hleypur meidd fyrsta maraþonið 25. september 2010 06:00 Veðurfréttakonan Soffía Sveinsdóttir lætur meiðsli ekki stöðva sig og hleypur Berlínarmaraþonið á morgun. fréttablaðið/gva „
Ég skal komast í mark – en ég er svo hrædd um að ég rústi mér,“ segir veðurfréttakonan Soffía Sveinsdóttir. Soffía flaug til Þýskalands í gær, en þar hyggst hún taka þátt í Berlínarmaraþoninu á morgun. Hlaupið mun reynast Soffíu erfiðara en ella þar sem hún hefur glímt við hnémeiðsli að undanförnu. „Ég fékk bólgur utan á liðbönd í báðum hnjánum þannig að ég er búin að vera hjá sjúkraþjálfara í mánuð,“ segir hún. Maraþonið er fyrsta borgarmara-þonið sem hún hleypur, en áður hefur hún tvisvar hlaupið hinn alræmda Laugaveg, 54 kílómetra leið. Þannig að þetta er bara skemmtiskokk fyrir þig? „Skemmtiskokk! Það er reyndar allt öðruvísi út af því að maður hleypur allan tímann í maraþoni, en á Laugaveginum labbar maður upp og niður brekkurnar,“ segir Soffía. „Ég bý að æfingunum fyrir Laugaveginn. Ég skráði mig í janúar og það er ekki hægt að hætta við, ég er búin að bóka flug og svona. Þannig að ég fer þetta á þrjóskunni.“ Soffía segir meiðslin hafa orðið til þess að hún slái af tímakröfunum. „Nú er markmiðið að koma í mark, en ég er ekki að fara að gera neinar rósir – enda hefði ég ekki gert það hvort sem er,“ segir Soffía hógvær. - afb
Mest lesið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Lífið samstarf Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Lífið „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Lífið Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Lífið Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Tónlist Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Tónlist Fleiri fréttir Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Sjá meira