Ómar gæti verið á leið í dýrlingatölu 9. október 2010 08:15 Ómar Ragnarsson gæri orðið að þjóðardýrlingi, líkt Jónasi Hallgrímssyni og Jóni Sigurðssyni, segir bókmenntafræðingur. Eðlilegt er að slík tákn breytist eftir tíðaranda. Leifur heppni gæti farið á íslenska evrumynt, verði hún slegin.
Það að fæðingardagur Ómars Ragnarssonar hafi verið valinn sem Dagur íslenskrar náttúru er gott dæmi um að það er að mörgu leyti pólitískt fremur en náttúrulegt fyrirbrigði þegar einstaklingar eru gerðir að þjóðardýrlingum, segir Jón Karl Helgason, bókmenntafræðingur og dósent við Háskóla Íslands. Þjóðardýrlinga kallar hann þá einstaklinga sem ríkisvaldið tekur upp á sína arma og gerir að táknum fyrir einhver gildi sem það vill upphefja, sér í lagi þjóðerniskennd. Jón Karl segir of snemmt að segja hvort álíka upphefð bíði Ómars og raunin hefur orðið um Jónas Hallgrímsson og Jón Sigurðsson, en það sé alls ekki útilokað. „Ómar er að nokkru leyti arftaki þjóðskáldanna á 19. öld. Það sem hann gerir í sjónvarpi er líkt því sem skáldin gerðu í náttúrukveðskap sínum," segir hann. Þetta kom fram á fyrirlestri hjá Alþjóðamálastofnun fyrir skömmu. Jón Karl ræddi þar um evrópska þjóðardýrlinga, sem hann hefur rannsakað upp á síðkastið. Hann segir að þegar einstaklingar eru teknir í dýrlingatölu á þennan hátt, minni það mjög á hvernig dýrlingar kristninnar hafa verið útvaldir af hálfu kirkjunnar. Fyrir utan dýrlingadaga má nefna að gerðar eru styttur af dýrlingnum eða götur nefndar eftir honum. Jón Karl Helgason rannsakar þessa dagana stöðu Jónasar Hallgrímssonar í alþjóðlegu samhengi. Á fyrirlestri Alþjóðamálastofnunar um evrópska þjóðardýrlinga nefndi hann Ómar sem dæmi um hugsanlegan dýrling. „Nú finnst okkur náttúrulegt að Jón Sigurðsson standi á Austurvelli, en það eru margar litlar ákvarðanir og tilviljanir og pólitísk sjónarmið þar að baki," segir hann. Táknin eða dýrlingarnir sem þjóðir velja sér séu í sífelldri mótun. Til að mynda var Bertel Thorvaldsen, hálfur Dani, á Austurvelli, þegar Ísland var í konungssambandi við Danmörku. Þegar leið að lýðveldisstofnun var eðlilegt að Bertel væri skákað til og Jón forseti tæki hans sess, að mati Jóns Karls. Á dögunum hefði hann hitt fólk sem klökknaði þegar það frétti að Ómari Ragnarssyni hefði hlotnast þessi heiður. „Það er af því að fólkið þekkir Ómar og talar tungumálið hans. Veikleiki Jóns Sigurðssonar er að það eru ekki margir sem muna eftir honum og enn færri sem lesa hann," segir Jón Karl, en tekur sérstaklega fram að hann sé ekki að spá því að Jón Sigurðsson verði fjarlægður af Austurvelli. klemens@frettabladid.is
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira