Bætt réttarstaða fórnarlamba mansals og hælisleitenda 4. október 2010 13:16
Útlendingastofnun hefur fengið heimild til að veita tímabundið dvalarleyfi til sex mánaða til einstaklings sem grunur leikur á að sé fórnarlamb mansals. Auk þess er mælt fyrir um endurnýjanlegt dvalarleyfi til eins árs þegar talið er að dvöl fórnarlambs mansals hérlendis sé nauðsynleg vegna persónulegra aðstæðna viðkomandi, eða vegna samvinnu viðkomandi við yfirvöld í tengslum við rannsókn eða við meðferð sakamáls. Réttarstaða fórnarlamba mansals hefur verið bætt til muna með nýlegri samþykkt Alþingis um breytingar á útlendingalögum. Réttarstaða hælisleitenda batnar ennfremur mjög með breytingunum og eru þær gerðar til samræmis við þróun löggjafar í þessum málaflokkum í Evrópu. Breytingarnar, sem koma fram í lögum nr. 115/2010, byggjast á tillögum nefndar sem fór yfir reglur og framkvæmd um meðferð hælisumsókna og koma fram í skýrslu til þáverandi dómsmálaráðherra í ágúst 2009. Breytingarnar eru m.a. í takt við helstu tilskipanir sem í gildi eru innan Evrópusambandsins um málefni hælisleitenda. Auk þess er horft til þróunar löggjafar í Noregi, en íslensku útlendingalögin byggja á norskum lögum. Gert ráð fyrir að ýmis ákvæði verði nánar útfærð í reglugerð ráðherra. Settar hafa verið skýrari reglur um málsmeðferð hælisumsókna og réttarstöðu hælisleitenda á meðan mál þeirra eru til meðferðar hjá stjórnvöldum. Þá hafa verið lögfest viðmið við veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarástæðna. Önnur helstu nýmæli laganna eru: - Ný ákvæði eru sett um aukna vernd þeirra sem ekki eru flóttamenn samkvæmt skilgreiningu alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 eða Flóttamannasamnings Sameinuðu Þjóðanna.. Þeir sem eiga á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, verði þeir sendir aftur til heimalands síns, fá nú sömu réttarstöðu og flóttamenn. - Ný og skýrari ákvæði hafa verið sett um réttarstöðu fylgdarlausra barna undir 18 ára aldri og meðferð máls þeirra. Hugtakið fylgdarlaust barn er nú skilgreint sérstaklega í 44. grein laganna. - Sett er skýrara heimildarákvæði um afturköllun á hæli auk þess sem kveðið er á um að heimilt sé að afturkalla hælisveitingu ef síðar kemur í ljós að flóttamaður hefur gerst sekur um nánar tiltekin alvarleg brot. - Lögð er skylda á stjórnvöld að eiga samvinnu við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og leita upplýsinga hjá stofnuninni þegar það á við. - Sett er nýtt ákvæði um flýtimeðferð hælisumsókna, meðal annars þegar umsókn þykir bersýnilega tilhæfulaus. - Réttarstaða flóttafólks sem kemur til landsins samkvæmt ákvörðun stjórnvalda er styrkt með því að mælt er fyrir um útgáfu dvalarleyfis til fjögurra ára í stað þriggja. Þá eru gerðar undanþágur á framfærslukröfum til þessa hóps þegar sótt er um búsetuleyfi.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira