Innlent

Námsbrautum í Háskólanum í Reykjavík fækkað um þrjár

Karen Kjartansdóttir skrifar

Námsbrautum í Háskólanum í Reykjavík verður fækkað um þrjár og fjöldi starfsmanna missir vinnuna. Skólameistari segir aðgerðirnar mjög sársaukafullar en það eina skynsamlega í stöðunni.

Kennslu í kennslufræði, stærðfræði og lýðheilsufræði verður hætt í áföngum í Háskólanum í Reykjavík vegna niðurskurðar á framlagi ríkisins til skólans. Um hundrað nemendur stunda nám við þessar brautir nú, þeir fá þó allir að ljúka námi við skólann.

Síðustu vikur hefur þrettán starfmönnum verið sagt upp.

Ari Kristinn Jónsson, rektor skólans, fór yfir aðgerðirnar ásamt kennurum og nemendum á fundi í dag.

Hann segir þetta afar þungbært. Hann sjái þó aðeins tvær leiðir færar í þeirri stöðu sem blasir við, önnur sé að fórna gæðum námsins, hin sé að einbeita sér að þeim sviðum sem hægt er að gera vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×