Innlent

Kosið verði um álversstækkun í vor

Kosið var um stækkun álversins í Straumsvík í apríl 2007. Pétur Óskarsson frá samtökunum Sól í Straumi, Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi og Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði.
Kosið var um stækkun álversins í Straumsvík í apríl 2007. Pétur Óskarsson frá samtökunum Sól í Straumi, Rannveig Rist forstjóri Alcan á Íslandi og Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði. Mynd/Daníel Rúnarsson

Samtökin Sól í Straumi vilja ekki að kosið verði um stækkun álversins í Straumsvík samhliða fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave en vilja þess í stað að kosningin fari fram sama dag og bæjarstjórnarkosningarnar í vor.

Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, hefur sagt að hann sjái fyrir sér kosningar um málið fari fram 6. mars samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Þessu er Sól í Straumi mótfallið því samtökin telja að samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu muni umfjöllun fjölmiðla um Icesave kæfa umræðu um stækkun álversins í Straumsvík. Auk þess muni bæjarbúum gefast afar skammur tími til að kynna sér kosti og galla stækkaðs álvers.

Þá minna Sól í Straumi á að kosið var um stækkunina fyrr á yfirstandandi kjörtímabili. Þau telja því óeðlilegt að aðrar kosningarnar fari fram um tveimur mánuðum áður en bæjarstjórn endurnýjar umboð sitt til að stjórna bænum.

„Æskilegra er að kjósendur fái að heyra afstöðu framboða og frambjóðenda til bæjarstjórnar til þessa mikilvæga máls fyrir Hafnarfjörð og íbúa bæjarins," segir í tilkynningu frá samtökunum.




Tengdar fréttir

Kosið á ný um stækkun álvers

Gildi undirskrifta um nýja kosningu um stækkun álvers í Straumsvík hefur verið staðfest og unnið er að undirbúningi kosningarinnar. Óformlegar viðræður hafa átt sér stað á milli rekstraraðilans, Rio Tinto Alcan, og bæjarfélagsins, en formlegra svara er beðið, að sögn Lúðvíks Geirssonar bæjarstjóra í Hafnarfirði. Hann segir mögulega verða kosið um málið samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave.

Ekkert ákveðið um stækkun álversins

Ekki er tryggt að ráðist verði í stækkun álversins í Straumsvík, þó það yrði samþykkt í íbúakosningu. Fyrirtækið mun athuga málið komi sú staða upp. Stækkun er enn talinn hagkvæmur kostur, segir Ólafur Teitur Guðnason hjá Rio Tinto Alcan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×