Mannréttindafulltrúi SÞ ræðir um eflingu og verndun mannréttinda 15. júní 2010 08:46 Mynd/AFP
Í tilefni af komu Navanethem Pillay, mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna til Íslands, stendur utanríkisráðuneytið, í samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Íslands og Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, fyrir opnum fundi um eflingu og verndun mannréttinda á morgun, 16. júní. Á fundinum mun Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra flytja ávarp og Navanethem Pillay fjalla um hlutverk Sameinuðu þjóðanna við að efla og vernda mannréttindi. Fundarstjóri verður Þóra Arnórsdóttir, fréttamaður. Fundurinn, sem fram fer á ensku, verður haldinn í Þjóðmenningarhúsinu og hefst 16. Hann er öllum opinn. Navanethem Pillay hefur gegnt stöðu mannréttindafulltrúa SÞ í rétt tvö ár. Hún er frá Suður-Afríku, lögfræðingur að mennt. Á dögum aðskilnaðarstefnunnar tók Pillay að sér að verja baráttumenn gegn aðskilnaðarstefnunni og félaga í verkalýðsfélögum og þekkir því viðfangsefni sín af eigin raun. Hún hefur verið öflugur málsvari kvenréttinda og einn af stofnendum hinna alþjóðlegu félagasamtaka "Equality Now", sem berjast fyrir réttindum kvenna. Þá hefur Pillay starfað með fjölda félagasamtaka sem vinna m.a. að málefnum barna, fanga, fórnarlamba pyntinga og heimilisofbeldis, sem og margskonar efnahagslegum, félagslegum og menningarlegum réttindum. Pillay hefur verið dómari við tvo af helstu stríðsglæpadómstólum heims. Hún var dómari í Alþjóðastríðsglæpadómstólnum vegna Rúanda í 8 ár og dómari í Alþjóðasakamáladómstólnum í Haag í 5 ár.
Mest lesið Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa Innlent Fleiri fréttir Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla Sjá meira