Kynnti áætlun um aukið samstarf á milli háskóla 15. júní 2010 16:10 Katrín Jakobsdóttir. MYND/Anton
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, kynnti fyrir ríkisstjórn í morgun áætlun um aukið samstarf og verkaskiptingu opinberu háskólanna með hugsanlega sameiningu að markmiði. Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu segir að áætlunin geri ráð fyrir því að innan fárra ára verði starfandi öflugt net opinberra háskóla sem bjóði upp á fjölbreytt háskólanám á öllum sviðum sem og betri nýtingu fjármuna. „Fyrsta skrefið í þá átt er að samræma og samhæfa ýmiss konar stoðþjónustu og stjórnkerfi háskólanna, s.s. tölvukerfi, nemendaskrár, kennsluskrár, launakerfi og fleira. Einnig er reiknað með að fjarkennsla verði notuð í auknum mæli." Að mati mennta- og menningarmálaráðuneytisins er stofnun nets opinberu háskólanna nauðsynlegt til að standa vörð um fjölbreytt námsframboð og öflugar rannsóknir á sviðum sem eru veigamikil fyrir íslenskt samfélag. „Slíkt netsamstarf er jafnframt nauðsynlegur undanfari sameiningar á háskólastiginu, standi vilji til þess á síðari stigum. Þessar hugmyndir hafa verið til umræðu í nánu samstarfi við rektora allra háskóla í landinu á undanförnum vikum." Þá segir að framangreind áætlun sé viðbragð við þeim niðurskurði til háskólanna sem þegar hefur orðið og er fyrirsjáanlegur á næstu árum. „Sú hagræðing sem háskólanet opinberu háskólanna myndi hafa í för með sér þarf því að gerast hratt. Við núverandi aðstæður leggur mennta - og menningarmálaráðuneytið mikla áherslu á að standa vörð um gæði og getu skólakerfisins. Það kallar á forgangsröðun, tilfærslu verkefna og að kraftar þeirra sem sinnt hafa þessum málaflokki verði í auknum mæli sameinaðir. Það kallar líka á góða samvinnu milli allra aðila sem koma að menntunarmálum háskólastigsins í landinu."
Mest lesið Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Innlent Fleiri fréttir Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Sjá meira