Innlent

Saksóknari Alþingis kjörinn á morgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigríði J. Friðjónsdóttur hefur verið boðið að taka að sér starf saksóknara í máli Alþingis gegn Geir.
Sigríði J. Friðjónsdóttur hefur verið boðið að taka að sér starf saksóknara í máli Alþingis gegn Geir.
Það ræðst væntanlega ekki fyrr en á morgun hvort að Sigríður Friðjónsdóttir mun taka að sér embætti sérstaks saksóknara í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Þingfundur fer fram klukkan tvö á morgun samkvæmt dagskrá sem birt er á vef þingsins.

Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar, sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis mun gera tillögu að saksóknara við forsætisnefnd og tillagan verður svo borin upp á þingfundi. Eins og Vísir greindi frá á sunnudaginn hefur Sigríði J. Friðjónsdóttur verið boðið að taka að sér starfið. Atli vill ekkert gefa upp um afstöðu hennar til málsins og Vísir náði ekki tali af Sigríði þegar reynt var nú rétt eftir hádegið.

Steingrímur J. Sigfússon mun mæla fyrir fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár á þingfundi sem hefst klukkan tvö í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×