Innlent

Niðurskurði mótmælt á Blönduósi

Frá Blönduósi.
Frá Blönduósi.
Bæjarráð Blönduósbæjar mótmælir harðlega þeim niðurskurði sem gert er ráð fyrir hjá Heilbrigðiststofnun Blönduóss og birtist í fjárlagafrumvarpi 2011. Bæjarráðið segir að stofnunin hafi á undangegnum árum þurft að sæta miklum niðurskurði og nú sé svo komið að vegið er að grunnþjónustu og velferð íbúa í Austur-Húnavatnssýslu.

„Jafnframt mun öryggi ferðamanna sem fer um hálendið og þjóðveg 1 vera teflt í tvísýnu," segir í bókun bæjarráðsins. „Gangi þessar tillögur eftir er samanlagður niðurskurður síðustu þriggja ára tæp 40%. Bæjarráð ítrekar boð sitt um að koma að vinnu við hagræðingu og samvinnu heilbrigðistofnanna á Norðurlandi vestra en mótmælir niðurlagningu á starfssemi á landsbyggðinni sem eru í tillögum að fjárlögum næsta árs."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×