Innlent

Álit á umsækjendum um dómarastöðu kynnt eftir helgi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Nýr hæstaréttardómari hefur enn ekki verið skipaður þótt málflutningur hafi byrjað í Hæstarétti á miðvikudaginn.

Samkvæmt upplýsingum frá Þórunni J. Hafstein, ráðuneytisstjóra í dóms- og mannréttindamálaráðuneytinu, hefur ráðuneytinu borist álit frá nefnd sem mat hæfi umsækjenda og er verið að fara yfir það í ráðuneytinu.

Fjórir sóttu um stöðuna. Það voru þau Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari, Sigrún Guðmundsdóttir héraðsdómari, Viðar Már Matthíasson, settur hæstaréttardómari, og Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg.

Álit nefndarinnar verður birt á vefsíðu dóms- og mannréttindamálaráðuneytisins á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×