SÁÁ er of stór biti fyrir okkur 9. febrúar 2010 03:30 Bæjarstjórinn á Akureyri sér fyrir sér aukna aðsókn að félagsþjónustu bæjarins eftir lokun göngudeildar SÁÁ. Mynd/KK „
Auðvitað eru það vonbrigði að þeir skuli ekki finna aðrar leiðir til að fást við sinn niðurskurð,“ segir Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri á Akureyri, um þá ákvörðun SÁÁ að loka göngudeild samtakanna á Akureyri í vor. Hermann segir að SÁÁ sé vissulega að skera niður á fleiri stöðum en lokun göngudeildarinnar bitni harkalega á fólki á Akureyri. „Fyrst og fremst er þetta vont út af þeim íbúum sem hafa fengið þessa þjónustu að hún skuli ekki vera í boði lengur. Ég vona að menn leiti allra leiða til að koma í veg fyrir að þetta þyrfti að verða,“ segir bæjarstjórinn. Að sögn Hermanns hefur Akureyrarbær styrkt starfsemi SÁÁ meðal annars með fjárframlögum. Nú eigi að spara fimmtán milljónir króna með lokun göngudeildarinnar. „Við munum að sjálfsögðu ræða við SÁÁ en það er samt alveg ljóst að við getum ekki annast þetta verkefni fyrir þá. Þetta er miklu stærri biti en svo að við getum nokkurn tíma tekið við þessu,“ segir Hermann. Bæjarstjórinn sér fyrir aukið álag á félagsþjónustu bæjarins eftir lokunina hjá SÁÁ. „Þeir sem fá aðstoð í gegnum viðtöl hjá SÁÁ munu væntanlega leita eftir sambærilegum stuðningi hjá félagsþjónustunni,“ bendir hann á. - gar
Mest lesið Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Erlent Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Erlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Innlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Fleiri fréttir Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Meistaraverkefni sem endaði í The Lancet: „Af hverju ekki að miða hátt?“ Herjólfur siglir í dag Bandaríkin, innflytjendur og Gasa á Sprengisandi Olli slysi undir áhrifum fíkniefna Vestmanneyingar „slógu velferðarskjaldborg“ yfir gesti Sjá meira