Innlent

Hátt í 100 fjölmiðlakonur funduðu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Guðrún Helga Sigurðardóttir er formaður Félags fjölmiðlakvenna. Mynd/ Vilhelm.
Guðrún Helga Sigurðardóttir er formaður Félags fjölmiðlakvenna. Mynd/ Vilhelm.

Félag fjölmiðlakvenna harmar uppsagnir kvenna sem hafa gagnrýnt yfirmenn og eigendur fjölmiðla og krefst þess að hneykslanlegar uppsagnir á reyndum fjölmiðlakonum síðustu misserin verði leiðréttar og þær ráðnar aftur til starfa. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Félagi fjölmiðlakvenna. Félagið hélt fund í gær sem hátt í 100 fjölmiðlakonur voru viðstaddar.

Guðrún Helga Sigurðardóttir, formaður félagsins, segir í samtali við Vísi að þarna sé átt við formann og varaformann Blaðamannafélags Íslands, en þeim var báðum sagt upp störfum á Morgunblaðinu.

 

Á fundinum samþykkti félagið eftirfarandi ályktun.

„Fjölmennum fundi Félags fjölmiðlakvenna, haldinn í Reykjavík 3. febrúar 2010, ofbýður ástandið á ritstjórnum fjölmiðla landsins. Hlutur kvenna hefur ávallt verið rýr innan fjölmiðla. Uppsagnir hafa orðið til þess að konur eru ekki eins sýnilegar á fjölmiðlum og áður og þróunin er uggvænleg. Engar konur eru meðal æðstu stjórnenda stærstu fréttamiðla landsins og í hópi næstráðenda er hlutur kvenna aðeins um þriðjungur. Konum hefur einnig snarfækkað í hópi almennra blaða- og fréttamanna og þáttastjórnenda og var hlutfallið ekki gott fyrir. Einsleitur hópur karla er ráðandi í ákvörðunum um efnistök sem er ekki síst alvarlegt í ljósi þess að nú á sér stað endurmótun íslensks samfélags.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×