Landsvirkjun frestar viðræðum við fjölda fyrirtækja 3. febrúar 2010 18:38
Atvinnuuppbygging, sem nýtt hefði orku neðri Þjórsár, tefst um eitt til tvö ár vegna ákvörðunar umhverfisráðherra að hafna skipulagi Þjórsárvirkjana, segir forstjóri Landsvirkjunar. Hann segir Landsvirkjun hafa verið í viðræðum við fjölda fyrirtækja en þeim verði öllum frestað núna. Ellefu ár eru frá því Landsvirkjun hóf frumhönnun virkjananna þriggja og sex ár eru frá því Skipulagsstofnun og þáverandi umhverfisráðherra féllust á framkvæmdirnar. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir fyrirtækið hafa lagt í mikla undirbúnings- og hönnunarvinnu enda hafi stór hluti leyfa legið fyrir. Kostnaður sé um það bil 3,7 milljarðar króna sem fyrirtækið hafi lagt í undirbúning þessara virkjana. Stjórn Landsvirkjunar ákvað fyrir tveimur árum að orku Þjórsárvirkjana yrði ekki ráðstafað til nýrra álvera og hóf í staðinn viðræður við aðila á öðrum sviðum. Sérstaklega voru tilgreind netþjónabú og kísilflöguiðnaður og meðal annars horft til staðsetningar í Þorlákshöfn. Stöð tvö hefur upplýsingar um að á undanförnum mánuðum hafi lifnað mjög yfir óskum erlendra aðila um orkukaup, og geirar eins og matvælaiðnaður og stáliðnaður bæst í hópinn. Hörður segir Landsvirkjun í viðræðum við þó nokkuð mörg erlend fyrirtæki sem hafi lýst áhuga. Enginn af þeim samningum hafi verið á lokastigi en allir þeir samningar frestist núna. Hann vill ekki skýra frá því í hvernig starfsemi þessir aðilar eru. Varðandi gagnaver, sem þegar er í smíðum, segir Hörður að Landsvirkjun eigi í kerfinu orku sem dugi í fyrstu áfanga en verði nú að skoða aðra virkjanakosti um framhaldið. En telur hann að sú seinkun, sem nú verður á skipulagsferli Þjórsárvirkjana, geti seinkað annarri atvinnuppbyggingu? "Já. Hún seinkar þeirri atvinnuuppbyggingu sem hefði byggst á hugsanlegri orku frá neðri Þjórsá. Það gerir það," svarar Hörður. Hann telur erfitt að meta hversu mikil seinkunin verði. "En við teljum að það sé allavega eitt til tvö ár, miðað við þá stöðu sem málið er komið í núna," segir hann.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira