Bankarnir færa vinum húseignir á silfurfati 22. janúar 2010 12:28 Sigurður Helgi Guðjónsson. Mynd/Arnþór Birkisson
Formaður Húseigendafélagsins fullyrðir að bankarnir séu að færa vinum og vandamönnum húseignir sem þeir leysi til sín á silfurfati til að fegra bókhaldið. Ástandið sé jarðvegur fyrir mikla spillingu. Tortryggnin í garð bankanna er mikil þessa dagana, þeir eru að leysa til sín fjölda eigna sem síðan fara í sölu inn á frosinn fasteignamarkað. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram að Landsbankinn hefði nýverið selt skrifstofuhúsnæði við Grensásveg 12, sem á að breyta í hótel, á verði sem hefur verið fáheyrt hér undanfarin ár, á um 50 þúsund krónur fermetrann. Löggiltur fasteignasali, sem ekki kom nærri þessum viðskiptum, sem fréttastofa ræddi við taldi þó að í þessu fordæmalausa árferði væri þetta hugsanlega ásættanlegur samningur fyrir bæði bankann og kaupandann. Sigurður Helgi Guðjónsson hæstaréttarlögmaður og formaður Húseigendafélagsins gagnrýnir bankana fyrir ógagnsæi við sölu húsnæðis sem þeir hafi leyst til sín. Hann óttast að bankarnir séu að lækka verð á fasteignum. „Það er gott fyrir þá sem eru að kaupa en það er vont fyrir þá sem verða fyrir almennri verðlækkun. Bankarnir eiga vel að merkja allt húsnæði og ef þeir lækka almennt markaðsverð með þessum hætti þá fjarar undan þeirra eigin veðum," segir Sigurður og bætir við að bankarnir beiti „hókus pókus afskriftum." „Þarna er jarðvegur fyrir mikla mismunun. Þarna er jarðvegur fyrir mikla spillingu sem beina mætti kastljósinu að," segir Sigurður.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar ekki Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira