Gegn fátækt og félagslegri einangrun 22. janúar 2010 11:41 Árni Páll Árnason. Mynd/Anton Brink
Evrópuár gegn fátækt og félagslegri einangrun undir yfirskriftinni „Stöðvum fátækt!" hófst formlega . Árni Páll Árnason, félags- og tryggingarmálaráðherra, segir að íslensk stjórnvöld séu að fara að ráðast í gríðarlegt átak til að rjúfa einangrun og auka virkni þeirra sem glíma við langtímaatvinnuleysi. Evrópuárinu er ætlað að vekja athygli og leggja áherslu á baráttuna gegn fátækt og félagslegri einangrun um alla álfuna og er Ísland meðal þátttakenda. José Manuel Durao Barroso, forseti Evrópuráðsins, og José Luis Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, hófu átakið formlega við hátíðlega athöfn í Madrid í dag.Sjötti hver Evrópubúi berst við að ná endum saman „Baráttan gegn fátækt og félagslegri einangrun er mikilvægur hluti af því að komast upp úr efnahagskreppunni en það eru alltof oft hinir varnarlausu í samfélaginu sem verða verst fyrir barðinu á slíku ástandi. Með Evrópuárinu 2010 viljum við hvetja fólk til vitundar um þessi málefni og plægja akurinn fyrir sameinaðra samfélag, sem er hluti af framtíðaráætlun Evrópusambandsins 2020 sem ég hef lagt til," er haft eftir Barroso í fréttatilkynningu. Vladimír Špidla, framkvæmdastjóri jafnra tækifæra, atvinnu- og félagsmála hjá Evrópuráðinu bætti við að sjötti hver Evrópubúi berjist daglega við að ná endum saman og að fátækt hafi áhrif á alla. Ísland meðal þátttakenda Ísland tekur þátt í Evrópuárinu, og er það félags- og tryggingamálaráðuneytið sem stýrir verkefninu. Átakið hefst hér á landi í febrúar. Auglýst verður í blöðum eftir verkefnum og er vonast til þess að sem flesta taki þátt, að fram kemur í tilkynningunni. „Við þurfum að vanda mjög til verka við núverandi aðstæður, til að koma í veg fyrir fátækt og félagslega einangrun," segir Árni Páll. „Þess vegna höfum við í aðhaldsaðgerðum lagt áherslu á að skerða í engu bætur almannatrygginga hjá þeim sem hafa þær einar til framfærslu og greiðslur vegna fæðingarorlofs eru óskertar hjá lægri tekjuhópum. Við erum líka að ráðast í gríðarlegt átak til að rjúfa einangrun og auka virkni þeirra sem glíma við langtímaatvinnuleysi, á sama tíma og við eflum möguleika fólks með skerta starfsgetu til virkrar þátttöku á vinnumarkaði og í samfélaginu. Um öll þessi verkefni þarf þjóðarsamstöðu."
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar ekki Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira