Skólapiltar gera grín á ÍNN 22. janúar 2010 06:00 Gamansamir Piltarnir í hinum nýja gamanþætti, Grínland, sem tekinn verður til sýningar á ÍNN: Eysteinn Sigurðarson, Guðmundur Helgason, Jón Gunnar Stefánsson, Davíð Örn Símonarson, Ásgeir Orri, Aðalsteinn Stefánsson og Jóhann Skúli Jónsson. Á myndina vantar Gísla Berg Sigurðarson og Arnþór Inga Kristinsson. Fréttablaðið/Stefán
Gamanþátturinn 12:00, sem upphaflega var á vegum nemendafélags Verslunarskólans, hefur vakið nokkra athygli og í kjölfar vinsældanna var þátturinn seldur til sjónvarpsstöðvarinnar ÍNN en undir nýju heiti. Níu ungir strákar standa á bak við þættina en þeir eru allir nemendur í Verslunarskólanum og byrjuðu fyrst með þáttinn í fyrra, þá á vegum nemendafélagsins. „Við fengum að halda áfram með þáttinn þetta skólaárið og það hefur bara gengið vonum framar og nú þetta. Þetta er mikið áhugamál og við höfum oft talað um hvað það væri gaman að geta haldið þessu áfram eftir útskrift þannig að þetta er draumur að rætast,“ segir Ásgeir Orri Ásgeirsson, einn níumenninganna. Gengið var frá samningum við ÍNN fyrir um hálfum mánuði og verður fyrsti þáttur hins nýja Grínlands frumsýndur í kvöld. „Við höfum ekki fengið mikinn tíma til að undirbúa okkur, en ÍNN keypti alla gömlu þættina líka og við munum nota þá í bland við nýtt efni. Við miðum við að vera með marga sketsa og eitt frumsamið tónlistaratriði í hverjum þætti.“ Að sögn Ásgeirs Orra sækja piltarnir innblástur víðs vegar að en oftast taka þeir fyrir efni sem þeim þykir sjálfum fyndið. Í þáttum 12:00 skipa tónlistaratriðin veigamikinn sess og segir Ásgeir Orri það tilviljun að þeir skuli allir geta sungið. „Við erum allir miklir söngfuglar og það er um að gera að nýta hæfileikana. Ég og tveir vinir mínir höfum verið að semja mikið saman og meðal annars samið lög fyrir hljómsveitina Nylon.“ Fyrsti þáttur Grínlands verður frumsýndur í kvöld klukkan 21.30 og verða þeir sýndir vikulega næstu þrjá mánuðina. sara@frettabladid.is
Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fleiri fréttir Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Sjá meira