Eyddu minnst tólf milljónum árið 2005 22. janúar 2010 05:00 Júlíus Vífill Ingvarsson Segist ekki birta tölur um helstu styrkina fyrr en hann fær samþykki helstu styrktaraðila.
Þrír borgarfulltrúar, sem eru frambjóðendur Sjálfstæðisflokks í yfirstandandi prófkjöri til borgarstjórnar, skiluðu ekki upplýsingum um styrki vegna prófkjörs fyrir kosningar 2006, til Ríkisendurskoðunar fyrir síðustu áramót. Þeir hafa fallist á að segja blaðinu hver kostnaðurinn var. Júlíus Vífill Ingvarsson segir styrki til sín hafa verið nálægt fjórum milljónum króna. „Ég ætla að taka þetta saman, en hef ekki komist í það. Þarna voru engir stórir aðilar, bara hóflegir styrkir,“ segir hann, en ætlar ekki að upplýsa að svo stöddu hverjir styrktu hann helst. Til þess hafi hann ekki fengið samþykki þeirra sem styrktu hann. Ríkisendurskoðun tekur ekki við þessum upplýsingum lengur, en Júlíus býst við að birta þessar upplýsingar á heimasíðu sinni, þegar þar að kemur. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir ætlaði að skila Ríkisendurskoðun sínum upplýsingum, en segist hafa haft of mikið að gera í prófkjörsinu, Hún frétti í gær að hún gæti ekki skilað gögnunum inn. Samkvæmt uppgjöri nam kostnaður hennar fyrir síðasta prófkjör rúmlega 3,6 milljónum. Þar af komu 535.657 krónur frá lögaðilum, 637 þúsund frá einstaklingum, en Þorbjörg reiddi sjálf fram 2,5 milljónir. í framboði Þorbjargar hafi verið ákveðið 2005 að taka ekki við hærri upphæð frá hverjum og einum en hundrað þúsund krónum: „Það var auðvitað hægt að fá talsvert hærri upphæðir, en ég sóttist ekki eftir því. Við höfðum þessa línu og sama gildir nú.“ Kjartan Magnússon sendi blaðinu í gær uppgjör sitt, og birti á heimasíðu sinni. Þar kemur fram að hann hafi fengið rúmlega 4,4 milljónir í styrki árið 2005. Rúm 732 þúsund frá þrettán einstaklingum, en tæplega 4,7 milljónir frá 47 lögaðilum. Þar af voru 815 þúsund samtals yfir 300 þúsund krónum hvert framlag. „Mér hafði ekki gefist tími til að ganga frá þessu,“ segir hann, spurður hví hann hafi ekki sent Ríkisendurskoðun gögnin. Um helstu framlög styrkveitenda, segir Kjartan að mest hafi komið frá Landsbanka, 500 þúsund. klemens@frettabladid.is Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir Segist ekki hafa sóst eftir framlögum hærri en 100.000 krónur.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira