Innlent

Guðjón Arnar hættir sem formaður Frjálslynda flokksins

Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins og fyrrverandi alþingismaður ætlar ekki að gefa kost á sér í formannsembættið á ný. Landsþing flokksins fer fram 19. og 20. mars næstkomandi og verður kosið í allar trúnaðarstöður flokksins.

Guðjón hefur verið formaður flokksins frá árinu 2003 og segist hann ætla að gefa kost á sér í miðstjórn flokksins þrátt fyrir að hann láti af formennsku.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×