Dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn ungum skátum Valur Grettisson skrifar 30. september 2010 17:38
Ungur karlmaður var dæmdur í síðustu viku fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum í skátunum. Sjálfur var maðurinn, sem var sautján ára þegar hann framdi brotin, leiðeinandi á námskeiði í skátunum. Hann var sakfelldur fyrir að káfað innan klæða á rassi og getnaðarlim sjö ára drengs og að hafa káfað innanklæða á átta ára dreng í Skátunum. Skátasamband Reykjavíkur tilkynnti atvikið til Barnaverndaryfirvalda í maí á síðasta ári eftir að foreldrar drengjanna greindu frá ásökununum. Fram kom í bréfinu sem Skátasamabandið sendi Barnaverndaryfirvöldumað ungi maðurinn hefði áreitt drengina á námskeði á vegum skátanna. Í bréfi Barnaverndar kemur og fram að annar drengurinn hafi í könnunarviðtali í Barnahúsi lýst atburðinum þannig að hann og vinur hans hafi einn daginn verið að leika sér í tölvu á námskeiðinu þegar leiðbeinandinn hafi byrjað að kitla hann, fyrst á líkamann en síðan farið inn á buxurnar og kitlað rassinn og typpið. Ungi maðurinn á þá að hafa sagt „þú ert með standpínu" og síðan bætt við „mér finnst það ekkert ógeðslegt". Á meðan á þessu stóð hafi vinur hans verið í tölvunni. Eftir atvikið hafi vinirnir rætt saman og vinurinn þá sagt frá því að það sama hefði verið gert við hann. Leiðbeinandinn neitaði alfarið sök. Dómurum þótti hinsvegar framburður drengjanna trúverðugur. Var maðurinn því dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Veður Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira