Askan varasöm fyrir fólk með linsur Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 4. júní 2010 18:21
Öskumistur lá eins og mara yfir gjörvöllu Suður- og Suðvesturlandi í dag og skyggni var lítið kringum gosstöðvarnar. Hætt er við að öskumistur af þessum toga verði viðvarandi vandamál í sumar, allt þar til snjóa tekur á ný í haust, segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands Skyggni var lítið og rétt að sæist grilla í toppinn á Ingólfsfjalli í dag. Vegfarandi sagði að öskumistrið hefði verið slíkt á Suðurlandinu að það hefði verið eins og keyra inn í versta moldrok. Úti við, hefði hreinlega verið vont bragð af loftinu. Að sögn Hrafns Guðmundssonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands, náði öskumistrið í dag frá svæðinu kringum gosstöðvarnar, yfir allt suðvesturhornið, Borgarfjörðinn og Borgarnes. Svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu í dag jafnaðist á við mengun á góðu gamlárskvöldi, samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Kvikmyndatökumaður fréttastofu tók myndir frá Öskjuhlíð nú síðdegis - þaðan rétt sást í Hótel Sögu og helstu kirkjuturna bæjarins en mistrið lá eins og svartaþoka yfir borginni. Skyggni í Reykjavík fór niður í 1500 metra. Þrátt fyrir skort á skyggni hafði öskumistrið engin áhrif á flugsamgöngur en vélarnar voru fljótar að komast upp fyrir svifrykið, samkvæmt upplýsingum frá Isavía. Fólki með viðkvæm öndurfæri er bent á að forðast útiveru í dag og jafnvel á morgun. Þá hafði gleraugnakaupmaður samband við fréttastofu og sagði að fólk með linsur fyndi til óþæginda í öskumistrinu en askan er sérstaklega varasöm fyrir fólk með linsur.
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Fleiri fréttir Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram gert ráð fyrir að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“