Faust Vesturports fer á svið 15. janúar 2010 07:00 Myndir frá æfingu Vesturportsins á Faust. Fjörutíu ár eru síðan Faust var síðast settur upp í íslensku leikhúsi en það eru þeir Þorsteinn Gunnarsson og Björn Hlynur Haraldsson sem leika sjálfan Faust. Hilmir Snær er síðan Mefistó.Fréttablaðið/Anton
Í kvöld frumsýnir Vesturport útgáfu sína af Faust í Borgarleikhúsinu. Sagan er aldagömul og ættuð frá Þýskalandi. Fjöldinn allur af útgáfum af Faust hefur verið sviðsettur, kvikmyndaður og sunginn. Leikrit Goethe er þekktast, en aðrar útgáfur eru til dæmis skáldsagan Doctor Faustus eftir Thomas Mann og Meistarinn og Margaríta eftir Mikhaíl Búlgakov, sem styðst við söguþráðinn. Fjörutíu ár eru síðan sagan um Faust fór síðast á leiksvið á Íslandi. Í leikritinu segir frá Faust. Hann er leikinn af Þorsteini Gunnarssyni og Birni Hlyni Haraldssyni, sem leikur hann á yngri árum. Faust er kominn á efri ár þegar hann uppgötvar að líf hans hefur ekki alveg verið jafn hamingjuríkt og hann hefði viljað. Mefistó (Hilmir Snær Guðnason) freistar hans og segist geta kynnt hann fyrir sannri hamingju í hinu ljúfa lífi skemmtunar og nautna. Faust tekur boðinu og handsalar veðmálið með því skilyrði að ef hann finni hamingjuna undir handleiðslu Mefistós, þá eignast djöfullinn sál hans. Veðmálið verður fyrst tvísýnt þegar Faust kynnist hinni hreinu, saklausu Grétu (Unnur Ösp Stefánsdóttir) sem dregst inn í þessa eilífu baráttu góðs og ills. Búast má við mögnuðu sjónarspili og háloftaatriðum. Fundnir eru ferskir listrænir fletir á efniviðnum. Sýn leikstjórans Gísla Arnar Garðarssonar er óbeisluð og fer á flug með leikurunum í óhefðbundinni leikmynd Axels Hallkels Jóhannessonar. Frumsamin tónlist Nicks Cave og Warrens Ellis rekur svo smiðshöggið á verkið. Áhorfendur mega búast við að sjá þessa klassísku sögu lifna við og skína í alveg nýju ljósi í meðförum Vesturports.- drg
Mest lesið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Menning Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Britney farin í meðferð Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Fleiri fréttir Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Sjá meira