Báðir geti unað við sjávarútvegssamning 8. júlí 2010 05:00
Evrópuþingið samþykkti í gær ályktun, þar sem umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu er fagnað og hún sögð geta orðið bæði Íslandi og ESB til góðs. Þingið hvetur til þess að Ísland ljúki tvíhliða samkomulagi við Bretland og Holland um greiðslu Icesave-skuldbindinganna. Í ályktuninni segir að samkomulag, sem öll ríkin geti fallist á, muni endurreisa traust á getu Íslands til að standa við skuldbindingar sínar og efla stuðning almennings, bæði á Íslandi og í ESB, við aðildarferli Íslands. Við afgreiðslu ályktunarinnar í gær var samþykkt breytingartillaga um að hvetja Íslendinga til að hætta hvalveiðum. Í ályktuninni segir hins vegar að þingið viðurkenni að Íslendingar hafi stjórnað auðlindum sjávar á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Þingið segist gera ráð fyrir að bæði ESB og íslensk stjórnvöld nálgist viðræður um að Ísland taki upp sameiginlega sjávarútvegsstefnu sambandsins með „uppbyggilegu viðhorfi", þannig að útkoman verði lausn, sem báðir aðilar geti sætt sig við og þjóni hagsmunum bæði sjávar-útvegsins og neytenda, jafnt á Íslandi og í ESB. Evrópuþingið bendir á að almenningsálitið á Íslandi hafi snúist gegn ESB-aðild og hvetur íslensk stjórnvöld til að efna til opinnar umræðu meðal almennings um aðildarferlið. Framkvæmdastjórn ESB er hvött til að aðstoða við upplýsingagjöf, þannig að almenningur á Íslandi geti tekið upplýsta ákvörðun um ESB-aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu.- sbt
Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira