Rúður brotnar í Litlu Kaffistofunni 6. september 2010 12:58 Litla Kaffistofan. Mynd / Ingó J.
Skömmu fyrir klukkan fimm á sunnudagsmorgninum voru brotnar tvær rúður í Litlu kaffistofunni samkvæmt lögreglunni á Selfossi. Fjórir ungir menn eru grunaðir um verknaðinn en þeir voru horfnir á braut í leigubifreið þegar lögregla kom á staðinn. Lögregla veit hverjir mennirnir eru og munu þeir verða kallaðir til yfirheyrslu vegna málsins. Aðfaranótt síðastliðins föstudags var brotist inn í verslunina Kiano við Austumörk 2 í Hveragerði og þaðan stolið tugi lopapeysa af ýmsum stærðum, útvistarfatnaði og sérhönnuðum flíkum. Þjófurinn braut sér leið inn í verslunina með því að spenna upp útihurð. Ef einhver hefur vitneskju um mannaferðir við verslunina eða nágrenni hennar umrædda nótt er sá beðinn að hafa samband við lögreglu í síma 480 1010. Hjólreiðamaður varð fyrir bifreið á móts við Breiðumörk 2 í Hveragerði síðastliðið laugardagskvöld. Við það féll hann af hjólinu og slasaðist á höfði og öxl. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á heilsugæslustöðina á Selfossi til rannsóknar og aðhlynningar. Maðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður. Þegar slysið átti sér stað var farið að skyggja en ekkert ljós var á hjólinu né glit og maðurinn var ekki með hjálm. Lögreglumenn höfðu um helgina afskipti af ökumanni sem var á ferð á Selfossi um helgina. Grunur vaknaði um að hann væri ölvaður við aksturinn. Þegar hann var beðinn að framvísa skilríkjum rétti hann lögreglumönnum skilríki annars manns og ætlaði með því að blekkja lögreglu. Við nánari skoðun kom í ljós að maðurinn hafði verið sviptur ökuréttindum og mun hann verða kærður fyrir ölvunarakstur, akstur sviptur ökurétti og hegningarlagabrot með því að hafa notað ófalsað skjal í blekkingarskyni.
Mest lesið Agnes var meira en bara morðingi Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Saka ríkisstjórnina um svik Innlent Fleiri fréttir Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Sjá meira