Hart tekist á um REI-málið 21. janúar 2010 15:47 Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar, hrökkaðist úr embætti borgarstjóra haustið 2007. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Hart var tekist um einn anga REI-málsins svokallaða á fundi borgarráðs í dag þegar fjallað var um fyrirspurn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, forseta borgarstjórnar, til innri endurskoðanda borgarinnar varðandi kaup á filippseysku ríkisreknu orkufyrirtæki. Meira en tvö ár eru síðan að ólga í kringum málefni tengd REI, útrásar- og dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, leiddi til þess að fyrri meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á yfirstandandi kjörtímabili sprakk. Fyrirspurn Vilhjálms varðaði afgreiðslu stjórnar Orkuveitunnar á fundum sínum í byrjun nóvember 2007 á erindi REI þar sem óskað var eftir heimild til að kaupa hlutabréf í filippseysku ríkisreknu orkufyrirtæki fyrir 12,8 milljarða króna. „Ég tel bæði rétt og nauðsynlegt að kynna þessa skýrslu fyrir borgarráði þar sem í skýrslunni kemur fram að ekki hafi verið ástunduð góð og upplýst vinnubrögð við afgreiðslu málsins, auk þess sem það vekur mikla athygli að meirihluti stjórnar OR hafi talið eðlilegt að veita svo miklum fjármunum til kaupa á hlutabréfum í erlendu ríkisreknu orkufyrirtæki sem stóð í einkavæðingarferli," segir í bókun sem Vilhjálmur lagði fram á fundi borgarráðs í dag.Gangast ekki við eigin verkum Í framhaldinu lögðu fulltrúar Samfylkingar annars vegar og Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks fram hverja bókunina á eftir annarri. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingar sögðu aðfinnslur Vilhjálms hitta hann sjálfan fyrir. „Upphlaup Sjálfstæðisflokksins nú er tilraun til að varpa ábyrgð yfir á þá sem fengu það erfiða hlutverk að greiða úr REI-klúðrinu í stað þess að gangast við eigin verkum. Í skýrslu Innri endurskoðunar eru hins vegar ýmsar ábendingar sem vert er að vinna áfram með á vettvangi OR og borgaryfirvöld þurfa að draga lærdóm af þessu máli eins og REI málinu öllu," segir í bókun Samfylkingarinnar.Spuni Samfylkingarinnar Því næst sögðu borgarráðsfulltrúar meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks að bókun Samfylkingarinnar væri spuni og sett fram til þess að koma sér undan ábyrgð í þessu alvarlega máli þar sem fulltrúar flokksins neituðu að gangast við eigin verkum. „Hún svarar engu um þá staðreynd að í 100 daga meirihlutanum samþykkti meirihluti stjórnar OR, þar með fulltrúi Samfylkingarinnar, að heimila REI að taka þátt í einkavæðingu ríkisrekins orkufyrirtækis á Filippseyjum með því að kaupa hlutabréf fyrir 12,8 milljarða króna án fyrirvara!"
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Fleiri fréttir Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Gripinn með stolið kreditkort og handtekinn Hafa borið kennsl á hinn látna Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Kveikt á götulýsingu í sólmyrkva á stofnbrautum Sjá meira