Kæra tefur framkvæmdir við Búðarháls 10. júní 2010 10:04 Frá blaðamannafundi Landsvirkjunar 10. febrúar í vetur þegar tilkynnt var að undirbúningsframkvæmdir færu af stað í vor. Mynd/Pjetur
Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, sem mikilvægt þótti að vinna í sumar, tefjast vegna niðurstöðu kærunefndar og hefjast í fyrsta lagi í haust. Niðurstaðan er vonbrigði fyrir Landsvirkjun, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Kærunefnd útboðsmála birti í gær úrskurð í kærumáli Verktakafélagsins Glaums ehf. og Árna Helgasonar ehf. gegn Landsvirkjun. Tildrög málsins eru þau að með kæru dagsettri 21. apríl 2010 kærði Verktakafélagið Glaumur ehf. og Árni Helgason ehf. synjun Landsvirkjunar á tilboði fyrirtækjanna í upphafsverk Búðarhálsvirkjunar, en fyrirtækin tvö voru saman lægstbjóðandi í verkið. Landsvirkjun synjaði lægstbjóðanda á grundvelli þess að fyrirtækin tvö uppfylltu ekki skilyrði útboðsgagna um hæfni. Alls voru bjóðendur í verkið sjö. Í kæru verktakafyrirtækjanna var meðal annars gerð sú krafa að útboð Landsvirkjunar yrði ógilt á grundvelli þess að bjóða hefði átt verkið út á evrópska efnahagssvæðinu. Í tilkynningu Landsvirkjunar segir að megin niðurstaða kærunefndar sé sú að fallist var á þá kröfu kæranda að auglýsa hefði átt útboðsverkið á evrópska efnahagssvæðinu. „Niðurstaða úrskurðarins er vonbrigði fyrir Landsvirkjun, þar sem hún hefur í för með sér að umtalsverðar tafir verða á upphafi framkvæmda við Búðarhálsvirkjun. Líklegt er í ljósi úrskurðarins og þess tíma sem útboðsferli innan evrópska efnahagssvæðisins tekur að framkvæmdir við Búðarháls hefjist í fyrsta lagi á haustmánuðum þessa árs."
Tengdar fréttir Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun ekki enn hafnar Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, sem mikilvægt þótti að vinna í sumar, hafa enn ekki hafist vegna ágreinings Landsvirkjunar og lægstbjóðanda og gæti svo farið að verkið tefðist um heilt ár. Þá hefur Landsvirkjun enn ekki tekist að fjármagna verkið í heild. 7. júní 2010 19:14 Mest lesið Bað lögreglustjóra að „veita framvegis réttar upplýsingar“ Innlent Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Erlent Strandveiðibátur strandaði á hólma á Reykjanesi Innlent Senda farandfólk frá Asíu til Suður-Súdan Erlent Áfram hlýtt og bjart en lægð nálgast Veður SÍS tekur undir kröfu Borgarbyggðar um kostnað vegna flóttamanna Innlent „Það er bara dýrt að vera fátækur“ Innlent Langjökull eigi ekki ýkja mörg ár eftir Innlent Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Innlent Óbreytt ástand kemur ekki til greina Innlent Fleiri fréttir Þurfa að finna nýtt húsnæði fyrir Kaffistofu Samhjálpar fyrir lok september Gefa sér þrjá mánuði til að leggja drög að Coda-stöð á Bakka Þrettán skemmtiferðaskip og Ísland uppselt Mótmæla við utanríkisráðuneytið Strandveiðibátur strandaði á hólma á Reykjanesi SÍS tekur undir kröfu Borgarbyggðar um kostnað vegna flóttamanna Bað lögreglustjóra að „veita framvegis réttar upplýsingar“ Langjökull eigi ekki ýkja mörg ár eftir Fæstir bera nægilega mikið af sólarvörn á sig Neyðarástand hjá Villiköttum sem senda frá sér ákall Vita upp á hár hvernig lýðræði virkar eftir krakkakosningar Óbreytt ástand kemur ekki til greina „Það er bara dýrt að vera fátækur“ Smáskjálftahrina á Reykjanesskaga Viðbúnaður í Djúpinu, böndum komið á áfengissölu og stútfull herbergi af köttum 32 sóttu um stöðu mannauðsstjóra hjá Matvælastofnun Fimm keyptu gám sem er ekki til Brá sér í túristalíki og segir leigubílstjóra hafa okrað á sér Framtíðarnefnd lifir og formaðurinn fær tvær milljónir á ári Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Kjarasamningur lyfjafræðinga „illa felldur“ og átján ára bið lengist Tvær konur sluppu úr brennandi bíl „Þetta fór eins vel og kostur var“ Ekki eigi að stunda atvinnu sem valdi dýrum þjáningu Meirihlutinn á Ísafirði fallinn Líkur á eldgosi aukast með haustinu Mikill viðbúnaður vegna sjóslyss við Ísafjarðardjúp „Af einhverjum ástæðum er það ávallt Degi B. Eggertssyni að kenna“ „Í fullkomnum heimi væri best að allir töluðu góða íslensku“ Alma vill efla íslenskukunnáttu erlendra hjúkrunarfræðinga Sjá meira
Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun ekki enn hafnar Undirbúningsframkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, sem mikilvægt þótti að vinna í sumar, hafa enn ekki hafist vegna ágreinings Landsvirkjunar og lægstbjóðanda og gæti svo farið að verkið tefðist um heilt ár. Þá hefur Landsvirkjun enn ekki tekist að fjármagna verkið í heild. 7. júní 2010 19:14