Neyðarfundir í eignaleigufyrirtækjum í gærkvöldi 17. júní 2010 18:47
Neyðarfundir voru haldnir í eignaleigufyrirtækjum í gærkvöldi í kjölfar dóma Hæstaréttar í bílalánsmálunum. Þá voru starfsmenn SP-Fjármögnunar við störf í dag á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segist ætla að funda með fjármögnunarfyrirtækjum á næstunni vegna málsins Samtök fjármálafyrirtækja boðuðu eignaleigufyrirtækin á fund sinn í gær til að ræða niðurstöðu Hæstaréttar. Þá voru neyðarfundir haldnir og fundað fram á kvöld bæði hjá Lýsingu og SP-Fjármögnun í gær. Hjá SP-Fjármögnun voru menn við störf í dag á sjálfan þjóðhátíðardaginn, til að fara yfir niðurstöðu Hæstaréttar. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru forsvarsmenn SP-Fjármögnunar mjög áhyggjufullir yfir þeirri óvissu sem þeir telja að niðurstaðan feli í sér. Rætt hefur verið um að stjórnvöld komi hugsanlega til með að veita leiðbeiningar um hvernig eigi að reikna þessi lán til baka. Einn starfsmaður SP Fjármögnunar sagðist gjarnan vilja geta svarað því hver næstu skref yrðu og hvernig lánin yrðu reiknuð en sagði það í lausu lofti á þessari stundu. Gunnar Þ. Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, sagði í samtali við fréttastofu að Fjármálaeftirlitið hefði sérstaklega undirbúið sig fyrir þessa dómsniðurstöðu. Hann sagði að þetta kæmi til með hafa neikvæð áhrif á eiginfjárstöðu fjármálafyrirtækja og fjármögnunarfyrirtækja. Aðspurður hvort FME kæmi til með að veita leiðsögn um endurreikning lánanna sagði hann það ekki ljóst á þessari stundu. Gunnar sagði að FME myndi koma til með að funda með Samtökum fjármálafyrirtækja og forsvarsmönnum fjármögnunarfyrirtækja á næstunni til að ræða þá stöðu sem upp er komin.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira