Innlent

Borgarstjóri: Yndislegur fundur með Yoko Ono

Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar, listakonan Yoko Ono og Jón Gnarr, borgarstjóri.
Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkurborgar, listakonan Yoko Ono og Jón Gnarr, borgarstjóri.

Jón Gnarr, borgarstjóri, segir á færslu í dagbók sinni á samskiptavefnum Facebook að hann hafi átt yndislegan fund með Yoko Ono, ekkju Johns Lennons, eftir borgarráðsfund í dag. Næstkomandi laugardag verða 70 ár liðin frá fæðingardegi Johns.

„Byrjaði daginn á fundi. Erfiður borgarráðsfundur og beint á yndislegan fund með Yoko Ono. (Slapp úr klóm fálkans í fang friðardúfunnar!) :)," skrifar borgarstjóri í dagbókina.

Friðarsúlan í Viðey verður tendruð á laugardaginn en hún var fyrst tendruð fyrir þremur árum. Að venju mun Yoko afhenda Lennon friðarverðlaunin. Þau eru alla jafna veitt tveimur aðilum sem af hughrekki hafa beitt sér fyrir friði, sannleika og mannréttindum. Þá mun hún troða upp með hljómsveitinni Plastic Ono Band sem þau hjón stofnuðu árið 1968, eða áður en Bítlarnir liðu undir lok, í Háskólabíói á laugardagskvöld.

Við þetta má bæta að borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að stofna Menningarsjóðinn Imagine Peace - Reykjavík. Sjóðurinn er stofnaður með það að markmiði að styðja við og styrkja menningarstarf sem endurspeglar á einhvern hátt þau gildi sem Friðarsúlan byggir á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×