Innlent

Vongóð um að það náist að semja um þinglok

Hafsteinn Hauksson skrifar
Stjórn og stjórnarandstöðu gengur illa að semja um þinglok og enn er ágreiningur um afgreiðslu stórra mála. Forseti Alþingis vonast þó til þess að samkomulag náist á morgun.

Þrátt fyrir stíf fundahöld flokksformanna og þingforseta í gær hefur enn ekki tekist að ná samkomulagi um þinglok. Þeir munu áfram hafa rætt saman í dag, en Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, telur ólíklegt að hægt verði að ná lendingu um slit þingsins fyrr en á morgun. Hún segir að allir verði að gefa eitthvað eftir ef sátt eigi að nást og um það snúist málið.

Samkvæmt heimildum fréttastofu eru það helst varnarmálalögin, vatnalögin og lög um innstæðutryggingar sem enn á eftir að finna sátt um. Þverpólitísk samstaða mun hinsvegar vera um að ljúka ýmsum þingmálum sem lúta að skuldavanda heimilanna. Einn viðmælandi fréttastofu setti spurningamerki við hvort nægur tími væri til stefnu til að klára þau, en samkvæmt upphaflegri starfsáætlun þingsins verður þingi frestað á þriðjudag.

Ásta sagðist þó bjartsýn á að þinginu tækist að standa nokkurnvegin við áætlun og segist vona að hægt verði að ljúka þeim málum sem snúa að heimilunum.

"Ég geri ráð fyrir að menn nái utan um það. Ég er allavega að vona að það takist. Það er þverpólitísk vinna í gangi núna yfir helgina og á morgun til að leysa það, og ég er vongóð um að það náist," segir Ásta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×