Innlent

Óvæntur reikningur fyrir húsmæðraorlof

Orlofsferðir húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu í fyrra báru konurnar allt frá Hvolsvelli að Höfn í Hornafirði. Meðal þess sem þær tóku sér fyrir hendur var að aka í rútu í Dyrhólaey, fræðast um Skaftárelda og skoða hafnargerðina í Landeyjum.
Orlofsferðir húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu í fyrra báru konurnar allt frá Hvolsvelli að Höfn í Hornafirði. Meðal þess sem þær tóku sér fyrir hendur var að aka í rútu í Dyrhólaey, fræðast um Skaftárelda og skoða hafnargerðina í Landeyjum.

Orlof húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu efndi í fyrra til tveggja orlofsferða fyrir húsmæður. Alls nam kostnaður vegna starfseminnar 3,2 milljónum króna á því ári og er sveitarfélögum á svæðinu, lögum samkvæmt, ætlað að greiða tæpar 1,6 milljónir af því.

Reikningur vegna húsmæðraorlofsins var sendur Hveragerðis-bæ og ræddur þar á síðasta fundi bæjarráðs sem lýsti furðu sinni á því að boðuð lagabreyting þar sem orlofsgreiðslur þessar eru lagðar af skuli ekki hafa náð fram að ganga.

„Samkvæmt upplýsingum frá lögmanni Sambands íslenskra sveitarfélaga er þingmannafrumvarp um málið komið á dagskrá Alþingis en það hefur ekki enn hlotið samþykki. Fá sveitarfélög ef nokkur gerðu ráð fyrir greiðslum vegna orlofs húsmæðra árið 2010 og Hveragerðisbær er þar á meðal,“ segir í bókun bæjarráðsins sem síðan tekur fram að greinilegt sé að greiða verði reikninginn.

Lögin gera ráð fyrir því að konur sem veita eða hafa veitt heimili forstöðu án þess að fá fyrir það greitt eigi rétt á að sækja um orlof. Til að standa straum af því skuli sveitarfélög leggja fram peninga.

Ferðirnar tvær sem húsmæðurnar í Árnes- og Rangárvallasýslu fóru í fyrra voru farnar í júní og september. Í fyrri ferðinni gistu 38 konur í þrjá daga á Hótel Laka í Landbroti og mismunandi staðir voru skoðaðir, allt frá Dyrhólaey til Hornafjarðar. Seinni ferðin var svokallað hvíldarorlof í fjóra daga þar sem þrjátíu konur gistu á Hótel Hvolsvelli og í Smáratúni í Fljótshlíð.

Konurnar skoðuðu merka staði og nutu víða leiðsagnar fróðra manna. Á kvöldin undu þær sér við skemmtan á borð við bingó, rímur og harmónikkuleik að ógleymdri kvennasöngsveitinni Hot Babes.

„Á föstudag kvöddum við svo alsælar með skemmtilega og tilbreytingarríka dvöl og þakklátar öllu því ágæta fólki sem hlut átti að máli,“ segir í skýrslu ritara kvennanna um hvíldarorlofið í september.

Í reikningum sem sendir voru Hveragerðisbæ kemur fram að sjálfar greiddu konurnar samtals tæplega 1,2 milljónir króna fyrir ferðirnar tvær.gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×