Óvæntur reikningur fyrir húsmæðraorlof 27. maí 2010 05:00 Orlofsferðir húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu í fyrra báru konurnar allt frá Hvolsvelli að Höfn í Hornafirði. Meðal þess sem þær tóku sér fyrir hendur var að aka í rútu í Dyrhólaey, fræðast um Skaftárelda og skoða hafnargerðina í Landeyjum.
Orlof húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu efndi í fyrra til tveggja orlofsferða fyrir húsmæður. Alls nam kostnaður vegna starfseminnar 3,2 milljónum króna á því ári og er sveitarfélögum á svæðinu, lögum samkvæmt, ætlað að greiða tæpar 1,6 milljónir af því. Reikningur vegna húsmæðraorlofsins var sendur Hveragerðis-bæ og ræddur þar á síðasta fundi bæjarráðs sem lýsti furðu sinni á því að boðuð lagabreyting þar sem orlofsgreiðslur þessar eru lagðar af skuli ekki hafa náð fram að ganga. „Samkvæmt upplýsingum frá lögmanni Sambands íslenskra sveitarfélaga er þingmannafrumvarp um málið komið á dagskrá Alþingis en það hefur ekki enn hlotið samþykki. Fá sveitarfélög ef nokkur gerðu ráð fyrir greiðslum vegna orlofs húsmæðra árið 2010 og Hveragerðisbær er þar á meðal,“ segir í bókun bæjarráðsins sem síðan tekur fram að greinilegt sé að greiða verði reikninginn. Lögin gera ráð fyrir því að konur sem veita eða hafa veitt heimili forstöðu án þess að fá fyrir það greitt eigi rétt á að sækja um orlof. Til að standa straum af því skuli sveitarfélög leggja fram peninga. Ferðirnar tvær sem húsmæðurnar í Árnes- og Rangárvallasýslu fóru í fyrra voru farnar í júní og september. Í fyrri ferðinni gistu 38 konur í þrjá daga á Hótel Laka í Landbroti og mismunandi staðir voru skoðaðir, allt frá Dyrhólaey til Hornafjarðar. Seinni ferðin var svokallað hvíldarorlof í fjóra daga þar sem þrjátíu konur gistu á Hótel Hvolsvelli og í Smáratúni í Fljótshlíð. Konurnar skoðuðu merka staði og nutu víða leiðsagnar fróðra manna. Á kvöldin undu þær sér við skemmtan á borð við bingó, rímur og harmónikkuleik að ógleymdri kvennasöngsveitinni Hot Babes. „Á föstudag kvöddum við svo alsælar með skemmtilega og tilbreytingarríka dvöl og þakklátar öllu því ágæta fólki sem hlut átti að máli,“ segir í skýrslu ritara kvennanna um hvíldarorlofið í september. Í reikningum sem sendir voru Hveragerðisbæ kemur fram að sjálfar greiddu konurnar samtals tæplega 1,2 milljónir króna fyrir ferðirnar tvær.gar@frettabladid.is
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Það er ekkert bjart yfir okkur akkúrat í dag“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira