Það er enginn Evrópuher fyrir börnin 18. september 2010 08:00 Alyson Bailes hefur rannsakað breytingar á varnarstefnu ESB með Lissabon-sáttmálanum. Fréttablaðið/stefán „
Það er enginn Evrópuher til fyrir börnin að fara í og ef einhver myndi vilja neyða þau í her, þá gæti það einmitt verið NATO, sem Ísland hefur verið hluti af í sextíu ár,“ segir Alyson Bailes, fyrrum sendiherra Breta í Finnlandi og aðjúnkt við HÍ. Orðin lét hún falla á opnum fyrirlestri Alþjóðamálastofnunar í gær, spurð um auglýsingar ungra bænda á Íslandi, sem vara við því að fylgifiskur ESB-aðildar sé herskylda Íslendinga. Bailes segir að verði „bylting“ í evrópskri varnarstefnu eftir einhver ár og Bandaríkin dragi sig í hlé frá Evrópu og Evrópuþjóðir ákveði þá að þær vilji vinna saman að vörnum, þá sé mögulegt að Íslandi yrði boðið að taka þátt í Evrópuher. „En sem aðildarríki myndi það hafa neitunarvald,“ segir Bailes. Hún segir að til hafi staðið að þjóðir Evrópu ynnu saman að varnarmálum eins og öðru í árdaga Evrópusambandsins, og aðildarríkin hafi heitið hvert öðru stuðningi, en NATO hafi leyst þær hugmyndir af hólmi að lokinni annarri heimsstyrjöld og í kalda stríðinu. Að loknu Balkanskagastríði var rætt um þetta að nýju í Evrópu og úr urðu aðstoðarsveitir og friðargæsla, mjúkur hernaður vegna styrjalda utan sambandsins, segir Bailes. Langt í frá Evrópuher. „Sumir myndu halda því fram að stækkun sambandsins væri meginvarnarstefna ESB,“ segir Bailes. Með því að setja nágranna sína þannig undir sömu lög væri Evrópa að byggja upp æ stærra öruggt svæði. - kóþ
Mest lesið „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Innlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira